Stjórnmálafræðingur segir nýja könnun Gallup um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við ESB ekki endilega sýna að fleiri séu hlynntir inngöngu í sambandið. Í könnunni kemur fram að meirihluti landsmanna er hlynntur þjóðaratkvæðagreiðslu eða 57%. Ríflega 30 prósent eru andvíg og tólf prósent segjast hvorki hlynnt né andvíg. „Ég tel að þessi stuðningur hafi aukist vegna umræðu í samfélaginu,“ segir Eva H. Önnudóttir, stjórnmálafræðingur. Rætt var við hana í aukafréttatíma í sjónvarpinu í dag. Hún telur að það geti haft áhrif að þingsályktunartillaga ríkisstjórnarinnar sé komin á dagskrá og þá taki mögulega fleiri sem áður voru hlutlausir afstöðu til málsins. Hún segir tölurnar ekki endilega til marks um afstöðu til inngöngu þar sem mögulega vilji margir hefja aðildarviðræður án þess endilega að ganga í ESB. Landsmenn skiptast í tvo álíka stóra hópa þegar kemur að því hvernig þeir telja líklegast að þeir myndu greiða atkvæði ef framhald aðildarviðræðna við ESB yrði borið undir þjóðaratkvæði í dag. Rúmlega 52% telja að þau myndu kjósa með því að halda þeim áfram og tæplega 48% telja að þau myndu kjósa með því að hætta þeim. Sjá má viðtalið við Evu í heild hér fyrir neðan. Stjórnmálafræðingur segir að þrátt fyrir að meirihluti landsmanna sé hlynntur þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við ESB sé það ekki endilega merki um aukna afstöðu til inngöngu í sambandið. Kæmi ekki á óvart ef málþóf yrði á þingi Eva segir að formenn ríkisstjórnarflokkanna hafi á blaðamannafundi sínum í dag komið aðvörun á framfæri við stjórnarandstöðuna að fara ekki í málþóf um málið. „En það kæmi mér ekki á óvart ef það yrði eitthvað málþóf um þessa þingsályktunartillögu, segir hún. „En ég tek líka undir það að það er mikilvægt að leiða þetta mál til lykta hver sem niðurstaðan verður,“ segir hún. Hún segir afstöðu til ESB ganga þvert á flokka en að innan þeirra séu einnig einstakar skoðanir. „Ef það verður sagt nei í þjóðaratkvæðagreiðslu í þjóðaratkvæðagreiðslum að halda áfram viðræðum þá er þetta mál bara tekið út af dagskrá til lengri tíma,“ segir hún.