Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Aðeins fleiri vilja að aðildarviðræðum verði framhaldið en að þeim verði hætt

Read Full Article →

Meirihluti landsmanna, 57%, er hlynntur þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið, 30% eru andvíg og 12% hvorki hlynnt né andvíg. Þetta sýna niðurstöður nýs þjóðarpúls Gallups. Minni stuðningur er við atkvæðagreiðsluna meðal karla en kvenna. Þó er meirihluti í báðum hópum hlynntur atkvæðagreiðslunni. Íbúar höfuðborgarsvæðisins eru frekar hlynntir þjóðaratkvæðagreiðslu en íbúar á landsbyggðinni. Þá er fólk með háskólamenntun frekar hlynnt henni en fólk með minni menntun að baki. Kjósendur Viðreisnar og Samfylkingarinnar eru helst hlynntir þjóðaratkvæðagreiðslu, eða um 90% þeirra. 65% þeirra sem kysu Miðflokkinn og 63% þeirra sem kysu Sjálfstæðisflokkinn eru andvíg. Gallup spurði einnig um viðhorf fólks til aðildarviðræðnanna sjálfra. Þar skiptist þjóðin í tvo hópa sem eru nærri því jafn stórir. Rúmlega 52% segjast myndu kjósa með áframhaldandi viðræðum ef kosið yrði í dag. Tæplega 48% segja að þau myndu kjósa með því að aðildarviðræðum yrði slitið.

Share this article