Meirihluti landsmanna, eða 57%, er hlynntur þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið, 30% eru andvíg og 12% hvorki hlynnt né andvíg. Þetta sýna niðurstöður í nýjum þjóðarpúlsi Gallups. Minni stuðningur við atkvæðagreiðsluna mælist meðal karla en kvenna, þó er meirihluti í báðum hópum hlynntur atkvæðagreiðslunni. Þá eru íbúar höfuðborgarsvæðisins frekar hlynntir þjóðaratkvæðagreiðslu en íbúar landsbyggðar. Fólk með háskólamenntun er sömuleiðis frekar hlynnt henni en fólk með minni menntun að baki. Kjósendur Viðreisnar og Samfylkingar eru helst hlynntir þjóðaratkvæðagreiðslu, eða um 90% þeirra. 65% þeirra sem kysu Miðflokkinn og 63% þeirra sem kysu Sjálfstæðisflokkinn eru andvíg. Gallup spurði einnig um viðhorf fólks til aðildarviðræðnanna sjálfra. Þar skiptist þjóðin í tvo hópa sem eru nærri því jafn stórir. Rúmlega 52% segja að þau myndu kjósa með áframhaldandi viðræðum ef kosið yrði í dag. Tæplega 48% segja að þau myndu kjósa með því að aðildarviðræðum yrði slitið.