Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

57% lands­manna hlynnt þjóðar­at­kvæða­greiðslu

Read Full Article →

Samkvæmt nýbirtri könnun frá Gallup er meirihluti landsmanna hlynntur þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við ESB, eða 57%. Í tilkynningu frá Gallup segir jafnframt að ríflega 30% séu andvíg og 12% hvorki hlynnt né andvíg. Til stendur að leggja fram þingsályktunartillögu í vor um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu og voru þátttakendur spurðir hversu hlynntir eða andvígir þeir væru í garð þeirrar þjóðaratkvæðagreiðslu. Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar voru 33% svarenda alfarið hlynnt þjóðaratkvæðagreiðslu, 12% voru mjög hlynnt, 13% frekar hlynnt, 12% frekar andvígir, 5-7% mjög andvígir og 18% voru alfarið andvígir. Sjá einnig Meirihluti félagsmanna SI andvígur aðild að ESB Karlar voru frekar andvígir þjóðaratkvæðagreiðslunni en konur og voru íbúar höfuðborgarsvæðisins frekar hlynntari þjóðaratkvæðagreiðslu en íbúar landsbyggðarinnar. „Fólk með háskólamenntun er sömuleiðis frekar hlynnt henni en fólk með minni menntun að baki. Þau sem kysu Viðreisn og Samfylkingu ef kosið yrði til Alþingis í dag eru helst hlynnt þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna og þá þau sem kysu Flokk fólksins. Þau sem kysu Miðflokkinn og Sjálfstæðisflokkinn eru helst andvíg,“ segir í tilkynningu frá Gallup.

Share this article