Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Tjón upp á 1,1 milljarð

Read Full Article →

Álfheiður Ágústsdóttir, forstjóri Elkem á Íslandi, segir að verndartollar inn á Evrópumarkað hafi haft mikil áhrif á reksturinn enda Evrópa lykilmarkaður fyrir Elkem. „Við þurftum til að mynda að bregðast við með markaðsstoppi núna í desember og janúar, þar sem við tókum einn af þremur ofnum út í rekstrarstopp,“ segir Álfheiður. „Við getum því miður ekki útilokað frekari markaðsstopp á árinu, ef þróunin heldur áfram að vera óhagstæð. Áætlað beint tjón á árinu 2026 nemur að lágmarki um 1,1 milljarði króna, og gæti orðið meira.“ Sjá einnig Sam­keppnis­hæfni stóriðjunnar er brostin Einstaklega flókin staða Spurð hvort nægjanleg stefnumótun sé í gangi hjá stjórnvöldum til að tryggja stöðugleika og samkeppnishæfni stóriðju svarar Álfheiður: „Rekstur stóriðju byggir á langtímasýn, stöðugum rekstrarforsendum og skýru regluverki. Íslensk stjórnvöld hafa vissulega sett fram ýmsar áætlanir um atvinnustefnu, byggðarþróun, orkumál og loftslagsmarkmið.“ „Staðan sem er komin upp er þó einstaklega flókin og hefur íslenskur orkusækinn iðnaður tapað samkeppnisforskoti sínu sem áður var til staðar," segir Álfheiður. „Fyrir fyrirtæki eins og Elkem, sem keppa á alþjóðlegum mörkuðum, er samkeppnishæfni landsins grunnforsenda rekstrarins. Í þeirri flóknu stöðu sem upp er komin, þar sem Elkem er beitt verndartollum inn á Evrópumarkað en þarf á sama tíma að starfa eftir evrópsku regluverki með tilheyrandi kostnaði, reynir á að stjórnvöld vinni hratt og markvisst þannig að fyrirtækið, sem stendur undir verðmætasköpun og hátekjustörfum, verði ekki undir í alþjóðlegri samkeppni.“ 30 milljarða útflutningsverðmæti Álfheiður segir að stærstu afleiddu áhrif Elkem á íslenskt hagkerfi felist í útflutningsverðmætunum, sem nemi um 30 milljörðum króna á ári. „Starfsemin skapar jafnframt fjölda óbeinna starfa í tengdum greinum og styður við lykilinnviði eins og raforkuframleiðslu og flutningskerfi. Hún hefur afgerandi áhrif á rekstrargrundvöll sveitarfélaga og stuðlar að stöðugleika í hagkerfinu. Því er Elkem mikilvægt iðnfyrirtæki þegar horft er til bæði beinna og óbeinna efnahagslegra áhrifa.“ Viðtalið birtist í sérblaðinu Iðnþing 2026 . Áskrifendur geta lesið viðtalið í heild hér .

Share this article