Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Atvinnuvegaráðherra um Elkem: „Lykilmarkmiðið okkar allra að verja alþjóðlega samkeppnishæfni“

Read Full Article →

Stjórnvöld hafa ekki enn átt í beinum viðræðum við Elkem á Íslandi vegna breyttrar skráningar fyrirtækisins. Greint var frá því í morgun að móðurfélagið hefði skilgreint Elkem Iceland sem aflagða starfsemi og tekið eignir til hliðar til sölu. Elkem, sem er skráð á markað í Noregi, segir í ársuppgjöri að tollar Evrópusambandsins hafi haft neikvæð áhrif á afkomu félagsins. Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra segir stjórnvöld fylgjast með málinu. „Það er auðvitað miður þegar svona mikilvæg grunnstarfsemi hjá okkur lendir svona niðri á milli, við náum ekki inn fyrir varnargirðingar sem Evrópusambandið reisir utan um sín ríki í þessu tollastríði sem ríkir í heiminum,“ segir Hanna Katrín. „Þarna erum við mögulega að sjá einhverja afleiðingu þess. Við höldum auðvitað áfram í fyrsta lagi mikilli hagsmunagæslu sem hefur skilað góðum árangri hingað til.“ Verið sé að skoða framhaldið og unnið verði í þéttu samstarfi við Elkem og Álfheiði Ágústsdóttur, forstjóra fyrirtækisins. „Það er auðvitað ástæða til að hafa áhyggjur heilt yfir af samkeppnishæfni okkar á alþjóðlegum markaði. Við erum þetta lítil og við erum með mikinn útflutning, það ríkir tollastríð í heiminum, menn eru að keppast við að gæta sinna hagsmuna.“ Ísland lendi á milli í efnahagslegum átökum eða tollastríði Bandaríkjanna, Evrópusambandsins og annarra aðila. „Það er alltaf hættan þannig að við þurfum að beita öllum okkar kröftum í að tryggja okkar hagsmuni af því að lykilmarkmiðið okkar allra er að verja alþjóðlega samkeppnishæfni okkar,“ segir Hanna Katrín. Atvinnuvegaráðherra segir yfirvöld halda áfram að sinna hagsmunagæslu til að auka samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja á alþjóðamarkaði. Elkem á Íslandi hefur verið skilgreint sem aflögð starfsemi af móðurfélaginu.

Share this article