Norski félagið Elkem hefur flokkað starfsemi sína á Íslandi aflagða starfsemi og eign til sölu í uppgjöri sínu. Félagið segir í uppgjöri sem birtist í morgun að verið sé að skoða valkosti um framtíð starfseminnar á Íslandi, þar á meðal mögulega sölu. „Rekstrarniðurstaða Elkem á Íslandi hefur verið slök frá árinu 2024, sem rekja má til þess að kostnaðargrunnur félagsins er hærri en hjá öðrum verksmiðjum Elkem,“ segir í uppgjörstilkynningu norska félagsins. Stjórnendateymi ákvað á öðrum ársfjórðungi að endurskoða eignarhald kísilmálmverksmiðjunnar á Grundartanga. Fram kemur að söluferli sé hafið og verið sé að leita að langtímafjárfestum. Elkem segir að starfsemin á Íslandi hafi glímt í langan tíma við erfiðar markaðsaðstæður fyrir kísilmálm. Núverandi verð á kísiljárni sé undir því marki sem þarf til að tryggja sjálfbæra arðsemi hjá evrópskum framleiðendum sem eru með hærri kostnaðargrunn en annars staðar í heiminum. Eftir að hafa náð hæstu hæðum á árunum 2021–2022 tók verð á kísilmálmi að lækka og hefur síðan sveiflast á lægra verðbili. Í uppgjörinu segir að gangvirði að frádregnum sölukostnaði (e. Fair Value Less Cost to Sell) sé metið sambærilegt og bókfært virði íslenska dótturfélagsins í lok annars ársfjórðungs, sem nam 1,5 milljörðum norskra króna eða um 19,3 milljörðum íslenskra króna. Verndarráðstafanir ekki stuðlað að nægilegum verðhækkunum Vísarð er til þess að Evrópusambandið innleiddi þann 18. nóvember 2025 verndarráðstafanir gagnvart innflutningi á tilteknum járnblöndum, þar á meðal kísilmálmi. „Fram til þessa hafa verndarráðstafanir ESB haft minni jákvæð áhrif á markaðsverð en vænst var, sem endurspeglar dræma eftirspurn og áframhaldandi hættu á að kísiljárni verði skipt út fyrir önnur efni.“ Elkem segir að slíkum verndarráðstöfunum sé ætlað að bæta samkeppnisstöðu evrópskra framleiðenda með því að takmarka tollfrjálsum innflutningi utan ESB. Við slíkar aðstæður mætti almennt búast við að markaðsverð myndi hækka nægilega mikið til að standa undir því kostnaðarstigi sem þarf fyrir sjálfbæran rekstur hjá framleiðendum innan ESB. „Undir eðlilegum kringumstæðum væri Elkem á Íslandi samkeppnishæft,“ segir í uppgjörinu. „Undir eðlilegum kringumstæðum væri ríflega 11% EBITDA-framlegð þokkaleg fyrir Elkem á Íslandi.“ Ákvörðunin fylgir í kjölfar þess að fyrrverandi kínverski meirihlutaeigandi félagsins, Bluestar, losaði um hlut sinn í Elkem í viðskiptum þar sem hann tók við sílíkon-rekstrareiningum norska félagsins. Minnihlutaeigendur Elkem eignuðust félagið að fullu í byrjun árs. Sjá einnig Kínverski meirihlutaeigandinn selur sig út úr Elkem Álfheiður Ágústsdóttir, forstjóri Elkem á Íslandi, lýsti því í viðtali við Viðskiptablaðið í vor að samkeppnisstaða Íslands á þessum markaði hafi smám saman veikst undanfarin tíu ár, bæði vegna þróunar á innlendum orkumarkaði og vegna hraðra breytinga í alþjóðlegu umhverfi. Hún sagði aðrar þjóðir hafa sett sér markvissa iðnaðarstefnu og boðið fram betri rekstrarforsendur. „Þetta er stóra spurningin í dag; hvernig ætlum við að tryggja samkeppnishæfni iðnaðar ekki bara á Íslandi heldur í allri Evrópu? Ég tel mikilvægast að aðilar horfist í augu við að samkeppnishæfnin er brostin og fyrir Ísland er staðan sú að við stöndum höllum fæti jafnvel gagnvart öðrum framleiðendum innan Evrópu,“ sagði Álfheiður. Sjá einnig Samkeppnishæfnin er brostin