Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Útséð um að vaxtalækkunarferli haldi áfram

Read Full Article →

Innlent | mbl | 26.2.2026 | 19:05 Útséð um að vaxtalækkunarferli haldi áfram Anna Hrefna biðlar til stjórnvalda um að draga skattahækkanir til baka og opinbera aðila um að draga gjaldskrárhækkanir til baka. Samsett mynd/mbl.is/Karítas/Golli Ólafur Pálsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Vextir á Íslandi „Þetta er verra en flestir gerðu ráð fyrir“ Óskar eftir fundi til að fara yfir alvarlega stöðu „Hver einasta mæling étur upp ráðstöfunartekjur“ Mikið áhyggjuefni sem taka beri alvarlega Lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðu efnahagsmála » Fleiri tengdar fréttir Útséð er um að vaxtalækkunarferli Seðlabanka Íslands haldi áfram á næstunni. Þetta segir Anna Hrefna Ingimundardóttir, starfandi framkvæmdastjóri, aðstoðarframkvæmdastjóri og forstöðumaður efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins. Tólf mánaða verðbólga mælist enn 5,2% þvert á spár sem gerðu ráð fyrir að verðbólga myndi hjaðna lítið eitt og mælast undir 5 prósentum. Frétt af mbl.is „Þetta er verra en flestir gerðu ráð fyrir“ Mikil vonbrigði Anna Hrefna segir um endurtekið efni að ræða, sem séu mikil vonbrigði. Spurð hvort henni þyki líklegt að peningastefnunefnd Seðlabankans gæti lagt til vaxtahækkun segir hún það hljóta að koma til umræðu ef verðbólguþrýstingurinn fari ekki að minnka. „Þetta verðbólgustig gengur ekki til lengdar. Við höfum auðvitað sérstakar áhyggjur af verðbólgunni nú vegna forsenduákvæðis í okkar kjarasamningum sem kveður á um að ársverðbólga megi ekki vera yfir 4,7% eins og hún mun mælast í ágúst,“ segir Anna en bætir því við að hún telji engan hafa raunverulegan áhuga á því að fara aftur í kjaraviðræður á þessu ári. Frétt af mbl.is Óskar eftir fundi til að fara yfir alvarlega stöðu Framlag hins opinbera bagalegt Segir Anna sérstaklega bagalegt að sjá hvað hið opinbera hafi verið með mikið framlag til verðbólgunnar seinustu mánuði með skatta- og gjaldahækkunum og segir hún samtökin hafa bent á að þetta gæti sett allan almennan vinnumarkað að nýju í uppnám. Hún segir mikinn verðbólguþrýsting meðal annars enn til staðar vegna þess að eftirspurn hefur haldist sterk þrátt fyrir að verðbólgan hafi verið mikil. Segir hún Seðlabankann hafa bent á að þessi launaþróun sé ekki til þess fallin að draga úr eftirspurn. „Við erum að sjá launavísitölu hækka eins mikið og raun ber vitni. Það er að vísu opinberi markaðurinn sem er að leiða þá þróun núna um þessar mundir en jafnvel þó við horfum fram hjá því eru laun að hækka umfram getu hagkerfisins og það leiðir þá til aukins verðbólguþrýstings sem við erum að sjá raungerast núna.“ Frétt af mbl.is Mikið áhyggjuefni sem taka beri alvarlega Greina þarf undirliggjandi ástæður Anna Hrefna segir að samið hafi verið um ákveðnar hækkanir í kjarasamningum í ársbyrjun 2024 en svo sé ítrekað að raungerast að launavísitalan hækki talsvert umfram það sem samið hafi verið um. „Í ljósi þess hversu viðvarandi og alvarlegt þetta vandamál er í íslensku hagkerfi, þá teljum við að það þurfi að greina miklu betur undirliggjandi ástæður þess. Af hverju er launaþróun á Íslandi alltaf með þessum hætti? Þetta er langt umfram það sem þekkist í öllum okkar samanburðarlöndum. Þetta er ekki eingöngu afleiðing samninga, heldur eru einhverjir undirliggjandi kraftar að verki þarna sem við þurfum að ná betur utan um.“ Segir Anna Hrefna mögulega hluta af vandamálinu að við launahækkanir myndist bæði þrýstingur vegna kostnaðarauka fyrir fyrirtæki og á eftirspurn því þá séu launþegar ekki eins viðkvæmir fyrir verðhækkunum. „Þannig að þetta er svona ákveðinn vítahringur sem við virðumst vera föst í og höfum lýst því mjög lengi.“ Frétt af mbl.is „Hver einasta mæling étur upp ráðstöfunartekjur“ Minni innistæða reynst fyrir launahækkunum Hvað getum við gert í þessari stöðu? „Það mætti kannski biðla til stjórnvalda um að draga skattahækkanir til baka og opinbera aðila um að draga gjaldskrárhækkanir til baka. Það myndi nú hafa eitthvað að segja um verðbólgumælingar,“ segir Anna Hrefna. Þá segir hún að enn minni innistæða hafi reynst fyrir launahækkunum sem samið var um í síðustu kjarasamningum en búist var við þar sem þróunin sem gert var ráð fyrir í samningunum hafi ekki verið hagfelld. „Við getum auðvitað ekki spáð fyrir um framtíðina en það var gert ráð fyrir því að landsframleiðsla myndi halda áfram að aukast, framleiðni myndi vaxa og verðmætasköpun einnig. Að það hafi ekki raungerst til viðbótar við þetta launaskrið sem við erum að sjá hlýtur að auka verðbólguþrýsting.“ Frétt af mbl.is „Hver einasta mæling étur upp ráðstöfunartekjur“ Frétt af mbl.is Verðbólgan stendur í stað þvert á spár Tengdar fréttir Vextir á Íslandi „Þetta er verra en flestir gerðu ráð fyrir“ Óskar eftir fundi til að fara yfir alvarlega stöðu „Hver einasta mæling étur upp ráðstöfunartekjur“ Mikið áhyggjuefni sem taka beri alvarlega Lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðu efnahagsmála » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Regína á lista Samfylkingarinnar FH - Haukar, staðan er 18:21 Nokkrir fluttir á slysadeild ÍR – KA kl. 20.15, bein lýsing Svona er listi Samfylkingarinnar í borginni Umræðan Gagnsæi í verðlagningu í vinnslu og útgerð Óhagkvæm borgarlína Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Árangurinn á Íslandi greiddi götuna Smjörva skipt út á Landspítalanum Útséð um að vaxtalækkunarferli haldi áfram ÁTVR í stefnumótun Mest lesið Í gær Í vikunni Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Smjörva skipt út á Landspítalanum Glerbrotum rigndi inn í bílinn Varar við inngöngu Íslands í ESB Vara Íslendinga við strangari skilyrðum í Bretlandi „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Andlát: Víglundur Þór Þorsteinsson Nær 20 flug raskast vegna skyndilegs byls Óvinsælasti innkirtlafræðingur landsins Óskar eftir fundi til að fara yfir alvarlega stöðu Verður blint í skafrenningi og talsverðri ofankomu Útskrifaður af sjúkrahúsi Fangavörður grunaður um brot í starfi Gunnar Smári dregur sig í hlé vegna veikinda Gul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu Fylgstu með veðrinu ganga yfir Rúta með 53 farþegum hafnaði utan vegar Þýskur skíðagöngumaður gerði allt rétt Þrjár stúlkur réðust á eina Mannslát á Kársnesi: Telur myndina vera að skýrast Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Talinn vera undir mölinni „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Smjörva skipt út á Landspítalanum Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Nýjast á mbl.is » Regína á lista Samfylkingarinnar FH - Haukar, staðan er 18:21 Nokkrir fluttir á slysadeild ÍR – KA kl. 20.15, bein lýsing Svona er listi Samfylkingarinnar í borginni Umræðan Gagnsæi í verðlagningu í vinnslu og útgerð Óhagkvæm borgarlína Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fullyrðingar standast ekki ÁTVR í stefnumótun Lögreglan varar við fíkniefninu Kratom Kosningum flýtt í Danmörku Mest lesið Í gær Í vikunni Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Smjörva skipt út á Landspítalanum Glerbrotum rigndi inn í bílinn Varar við inngöngu Íslands í ESB Vara Íslendinga við strangari skilyrðum í Bretlandi „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Andlát: Víglundur Þór Þorsteinsson Nær 20 flug raskast vegna skyndilegs byls Óvinsælasti innkirtlafræðingur landsins Óskar eftir fundi til að fara yfir alvarlega stöðu Verður blint í skafrenningi og talsverðri ofankomu Útskrifaður af sjúkrahúsi Fangavörður grunaður um brot í starfi Gunnar Smári dregur sig í hlé vegna veikinda Gul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu Fylgstu með veðrinu ganga yfir Rúta með 53 farþegum hafnaði utan vegar Þýskur skíðagöngumaður gerði allt rétt Þrjár stúlkur réðust á eina Mannslát á Kársnesi: Telur myndina vera að skýrast Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Talinn vera undir mölinni „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Smjörva skipt út á Landspítalanum Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál

Share this article