Innlent | mbl | 11.6.2026 | 11:05 | Uppfært 13:33 Vara við hættu á vaxtahækkunum og kalla á aðhald Sendinefnd AGS gagnvart Íslandi kynnti niðurstöður sínar á blaðamannafundi í Safnahúsi í Reykjavík í morgun. mbl.is/Gunnlaugur Gunnlaugur Snær Ólafsson [email protected] Setja bókamerki Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) kallar eftir auknu aðhaldi og viðamiklum kerfisbreytingum í íslenska hagkerfinu, auk þess að vara við því að þörf gæti verið á frekari hækkun stýrivaxta Seðlabanka Íslands. Telur sjóðurinn að stjórnvöld hafi brugðist rétt við innlendum eftirspurnarþrýstingi með bættri hagstjórn, en verðbólga, launaþróun og áhrif alþjóðlegrar óvissu eru viðvarandi áskoranir. Þetta er meðal bráðabirgðaniðurstaðna árlegrar úttektar sendinefndar AGS á stöðu íslenska hagkerfisins, sem voru kynntar í Safnahúsi klukkan 10 í morgun. Fundaði nefndin meðal annars með Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra, Ásgeiri Jónssyni seðlabankastjóra og Daða Má Kristóferssyni fjármálaráðherra við vinnslu skýrslu sinnar. Bent er á að hagvöxtur hafi hægt verulega á sér um mitt ár 2023 og varð samdráttur 2024. Hóflegur viðsnúningur átti sér þó stað 2025 og er gert ráð fyrir 1,8 prósent hagvexti á þessu ári og 2,1 prósent á næsta ári. Frétt af mbl.is „Fjórða vaktin“ íþyngjandi fyrirtækjum Verðbólga er hins vegar, eins kunnugt er, langt yfir 2,5 prósenta verðbólgumarkmiði Seðlabanka Íslands. Spáð er að meðalverðbólga verði 5,2 prósent árið 2026 en lækki í 3,2 prósent árið 2027. Sjóðurinn telur að verðbólguna ekki verða innan markmiða fyrr en í ársbyrjun 2028. Ein helsta ástæða þessa er að laun halda áfram að hækka umfram framleiðni, sem dregur úr samkeppnishæfni landsins og kyndir undir verðbólgu. Draga úr verðtryggingu og auka varaforða Sendinefnd AGS telur núverandi peningastefnu vera hæfilega stranga en varar við því að frekari vaxtahækkanir gætu reynst nauðsynlegar á næstunni ef verðbólguþrýstingur varir áfram. Lagt er til að vaxtalækkanir verði hægfara ef rými skapast til slíkra aðgerða og er mælt með því að Seðlabankinn færist nær spádrifinni verðbólgumarkmiðsstefnu til að auka fyrirsjáanleika. Þá er lagt til að dregið verði úr vægi verðtryggðra húsnæðislána til að styrkja miðlun peningastefnunnar, og gjaldeyrisforðinn aukinn til að verjast ytri áföllum. Metodij Hadzi-Vaskov, yfirmaður sendinefndar AGS mbl.is/Eggert Jóhannesson Gæti þurft hækkun vsk Þá lýsir sendinefnd sjóðsins yfir stuðningi við tilraunir stjórnvalda til þess að ná hallalausum ríkisrekstri og nefnir bæði aðhald í útgjöldum og tekjuaukningu í formi kílómetragjalds og stefnu stjórnvalda í tengslum við innheimtu veiðigjalda. Stjórnvöld eru hvött til að fylgja eftir áætlunum um hallalausan ríkissjóð fyrir árið 2027, en ef frekari ráðstafana gerist þörf leggur nefndin til að hækkað verði lægra virðisaukaskattsstigið og haldið verði aftur af launakostnaði hins opinbera. Frétt af mbl.is Segir „planið“ ekki vera að virka sem skyldi Kerfisbreytingar Til að tryggja framleiðni og langtímavöxt leggur nefndin áherslu á viðamiklar kerfisbreytingar, meðal annars samræmingu kjarasamninga. Lagt er til að stéttarfélög opinberra starfsmanna taki þátt í samræmdum samningalotum við hlið einkamarkaðarins. Auk þess sem styrkja ætti heimildir ríkissáttasemjara til að leggja fram bindandi miðlunartillögur. Þá er talið nauðsynlegt að straumlínulaga þurfi ferli í kringum leyfisveitingar til að ýta undir samkeppni, draga úr hömlum á erlenda fjárfestingu og einfalda gjaldþrotarétt fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki. Bæta þarf einnig markvirkni ríkisstuðnings og skattaívilnana til rannsókna og þróunar, og hjálpa fyrirtækjum að stækka út fyrir sprotafyrirtækja-stigið. Flýta þarf umbótum á menntakerfinu að mati sendinefndarinnar sem telur nauðsynlegt að efla iðn- og verknám sem og raunvísindanám til að mæta skorti á sérhæfðu vinnuafli. Bankakerfið traust Íslenska bankakerfið er samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðunum viðnámsmikið, vel fjármagnað og býr yfir sterkri lausafjárstöðu. En veikleika má skynja í öðrum þáttum hagkerfisins, sérstaklega í byggingariðnaði og tengdri starfsemi, sem og innan ferðaþjónustunnar þar sem eftirspurn hefur minnkað. Húsnæðismarkaðurinn hefur sömuleiðis kólnað og raunverð lækkað. Telur sendinefndin að möguleg ESB-aðild og upptaka evru eyða gengisáhættu og dýpka viðskiptatengsl í gegnum aukna samþættingu fjármálamarkaða. Á móti kæmi að sjálfstæð peningastefna til að takast á við efnahagslegar áskoranir myndi glatast, auk þess hyrfu áhrif sveigjanleika krónunnar, sem sögulega hefur hjálpað Íslandi að mæta efnahagsáföllum. Ef sú vegferð verður valin, að taka upp evru, er sagt lykilatriði að ganga í evrusvæðið út frá stöðu lágrar verðbólgu og sjálfbærra ríkisfjármála. Á endanum er ESB-aðild spurning um pólitískt mat, segir í skýrslu nefndarinnar. Frétt af mbl.is Lausnin flóknari en gjaldmiðlaskipti Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Spánverjinn fer ekki fet Kviknaði í hitaskáp í Toppstöðinni Er upptaka evru ógn við efnahag Íslands? Fara fram á þingstubb í ágúst Skagamenn afhjúpa minningarstein Umræðan Höggvið á orkuhnúta, einn af öðrum Efnahagsleg hnignun ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Samkomulag á lokametrunum „Elskuð, virt og dáð af fólki um allt konungsríkið“ Ítrekar gagnrýnina: „algjörlega ótímabær“ Sendiráðið bregst við brigslunum Mest lesið Í gær Í vikunni Subway auglýsir verð í evrum Réðst á dreng í sundi Íhuguðu að kasta sér fram af brú Málið dagaði uppi hjá starfsmanni Aðalmeðferð í Edition-málinu hefst í dag Hagræðingarhópur kynntur Verðmætin gætu hafa varðveist á hafsbotni Afþakka risaeðlubein eftir þriggja ára vinnu starfshóps Starfsmönnum fjölgað og launakostnaður hækkaði Hitinn gæti náð 20 stigum Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Réðst á dreng í sundi Óttast er að hundruð missi vinnuna Íslenskur maður ekki fundið sársauka í 73 ár Lokuðu skrifstofum Hagkaupa eftir alvarlega hótun Dæmið gengur ekki upp Farþegar skildir eftir vegna ölvunar Nýjar íbúðir seljast ekki á ásettu verði Borgarstjóri fagnar stórafmæli í Ráðhúsinu Dró sér 3,3 milljónir vegna leigu á Tenerife Bubbi sleit liðband Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Réðst á dreng í sundi Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Um 300 þegar fengið viðvörun Tilbúnir að slást í sundklefunum Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Nýjast á mbl.is » Spánverjinn fer ekki fet Kviknaði í hitaskáp í Toppstöðinni Er upptaka evru ógn við efnahag Íslands? Fara fram á þingstubb í ágúst Skagamenn afhjúpa minningarstein Umræðan Höggvið á orkuhnúta, einn af öðrum Efnahagsleg hnignun ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sendiráðið bregst við brigslunum Óttast er að hundruð missi vinnuna Álverðið hefur rokið upp „Þetta er svona pínu íslenskt“ Mest lesið Í gær Í vikunni Subway auglýsir verð í evrum Réðst á dreng í sundi Íhuguðu að kasta sér fram af brú Málið dagaði uppi hjá starfsmanni Aðalmeðferð í Edition-málinu hefst í dag Hagræðingarhópur kynntur Verðmætin gætu hafa varðveist á hafsbotni Afþakka risaeðlubein eftir þriggja ára vinnu starfshóps Starfsmönnum fjölgað og launakostnaður hækkaði Hitinn gæti náð 20 stigum Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Réðst á dreng í sundi Óttast er að hundruð missi vinnuna Íslenskur maður ekki fundið sársauka í 73 ár Lokuðu skrifstofum Hagkaupa eftir alvarlega hótun Dæmið gengur ekki upp Farþegar skildir eftir vegna ölvunar Nýjar íbúðir seljast ekki á ásettu verði Borgarstjóri fagnar stórafmæli í Ráðhúsinu Dró sér 3,3 milljónir vegna leigu á Tenerife Bubbi sleit liðband Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Réðst á dreng í sundi Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Um 300 þegar fengið viðvörun Tilbúnir að slást í sundklefunum Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna