Eftir að hafa haldið af stað í vaxtalækkunarferli neyddist peningastefnunefnd Seðlabankans til að breyta um kúrs og hækka vexti á nýjan leik, ekki síst vegna gjaldskrárhækkana ríkisstjórnarinnar í ársbyrjun. Í síðustu tveimur vaxtaákvörðunum hefur nefndin hækkað vexti um 25 punkta og slegið nokkuð harðan tón í yfirlýsingum sínum um að ekki verði hikað við frekari hækkanir gerist þess þörf. Eftir þessar tvær hækkanir standa stýrivextir í 7,75%. Íslandsbanki spáir að stýrivextir verði hækkaðir enn á ný á næsta ársfjórðungi en haldist í kjölfarið óbreyttir fram á fyrsta fjórðung næsta árs. Í kjölfarið hefjist hægfara vaxtalækkunarferli sem muni standa fram á árið 2028. Því vaxtalækkunarferli gæti svo að sögn bankans lokið með stýrivexti í kringum 6%, verði efnahags- og verðbólguþróun í takti við spár hans. Arion banki reiknar einnig með frekari hækkun vaxta og að stýrivextir verði 8% undir lok árs. Bankinn væntir þess að vextir taki að lækka á næsta ári samhliða skaplegri verðbólguþróun og standi í 6,5% undir lok næsta árs. Landsbankinn reiknar sömuleiðis með frekari vaxtahækkun og að vextir verði ekki lækkaðir fyrr en á næsta ári. Bankinn reiknar með einni 25 punkta vaxtahækkun til viðbótar í ágúst. Ef verðbólga og verðbólguvæntingar leiti niður á við sé mögulegt að Seðlabankinn láti staðar numið í hækkunarferlinu en vextir verði þó ekki lækkaðir fyrr en á næsta ári. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .