Akkur telur uppgjör Festar fyrir annan ársfjórðung ekki gefa tilefni til breytinga á kaupráðgjöf eða verðmati greiningarfyrirtækisins á félaginu. Verðmatið er áfram 516 krónur á hlut, en lokagengi bréfa Festar var 314 krónur þegar greiningin var tekin saman. Verðmatið er því 64% yfir markaðsgenginu. Það var síðast uppfært í febrúar. Uppgjörið var í meginatriðum í takt við væntingar Akkurs og nokkuð betra á flestum helstu mælikvörðum. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, EBITDA, nam 3,9 milljörðum króna og var 1,9% yfir spá greiningarfyrirtækisins. Hagnaðurinn nam 1,3 milljörðum og var 2,3% umfram væntingar, þótt hann hafi dregist saman um 8,4% frá sama tímabili í fyrra. Sjá einnig Festi lækkar afkomuspána um hálfan milljarð Akkur segir þó neikvæðan tón hafa fylgt uppgjörinu vegna þess að Festi lækkaði EBITDA-spá sína fyrir árið um 500 milljónir króna. Félagið gerir nú ráð fyrir 16 til 16,5 milljarða króna EBITDA, en fyrri spá Akkurs hljóðaði upp á tæpa 16,7 milljarða og var því komið yfir efri mörk nýs spábils. Telur lækkunina ekki varanlega Akkur telur lækkun afkomuspárinnar fyrst og fremst endurspegla tímabundinn þrýsting á framlegð af eldsneytissölu en ekki varanlega veikingu í rekstri samstæðunnar. Greiningarfyrirtækið segir kjarnarekstur dagvöru ganga betur en áætlanir gerðu ráð fyrir og telur áhrif uppgjörsins á virði Festar takmörkuð, einkum með hliðsjón af þeim mun sem er á verðmati þess og markaðsgengi. Akkur lækkar þó EBITDA-spá sína fyrir árið úr 16,7 milljörðum í 16,3 milljarða króna. Spá um hagnað ársins er færð niður um 8%, úr 6,15 milljörðum í tæpa 5,7 milljarða. Frekara endurmat gæti komið til ef framlegð af eldsneyti reynist enn lakari á seinni hluta ársins en ný spá Festar gerir ráð fyrir eða ef mikil fjárbinding í rekstrinum gengur ekki til baka. Krónan sterk þrátt fyrir lokun í Lindum Akkur telur rekstur Krónunnar standa upp úr í uppgjörinu. Sala verslunarkeðjunnar jókst um 8,1% frá fyrra ári og EBITDA um 9,7%, í tæpa 1,7 milljarða króna. Árangurinn náðist þrátt fyrir að verslun Krónunnar í Lindum, stærstu verslun keðjunnar, hafi verið lokuð í níu vikur vegna endurbóta. Akkur segir lokunina hafa skilið eftir sig mun minni spor í uppgjörinu en ætla hefði mátt. Í uppgjöri Festar kom fram að tekjur af dagvörusölu hefðu aukist um 6,5% á fjórðungnum. Framlegð dagvöru jókst um 7,8% og framlegðarhlutfallið hækkaði um 0,3 prósentustig frá fyrra ári. Sjá einnig Tímabundin lokun Krónunnar vegur á afkomu Festi Akkur segir lokunina hafa skilið eftir sig mun minni spor í uppgjörinu en ætla hefði mátt. Í uppgjöri Festar kom fram að tekjur af dagvörusölu hefðu aukist um 6,5% á fjórðungnum. Framlegð dagvöru jókst um 7,8% og framlegðarhlutfallið hækkaði um 0,3 prósentustig frá fyrra ári. Að mati Akkurs gengur kjarnarekstur dagvöru betur en áætlanir gerðu ráð fyrir og vegur sterk afkoma Krónunnar á móti veikleikanum í eldsneytissölunni. Framlegð ELKO batnaði en Lyfja gaf eftir ELKO skilaði einnig betri framlegð en árið áður. Sala jókst aðeins um 1% en framlegð jókst um 8,2% og framlegðarhlutfallið hækkaði um 1,8 prósentustig, í 28%. EBITDA ELKO stóð nánast í stað og nam 425 milljónum króna. Afkoma Lyfju var veikari. Sala jókst um 6,6% en EBITDA dróst saman um 13%, í 341 milljón króna. Akkur telur mikilvægt að fá skýrari mynd af því hvort samdrátturinn skýrist einkum af verðtakmörkunum, breytingum á vörusamsetningu eða hækkandi kostnaði og hvernig framlegðin muni þróast á seinni hluta ársins. Tekjuvöxturinn að stórum hluta verðdrifinn Sala Festar nam 46,3 milljörðum króna á öðrum ársfjórðungi og var 3,6% yfir spá Akkurs. Tekjurnar jukust um 6,4% frá sama tíma í fyrra. Akkur bendir þó á að stór hluti aukningarinnar skýrist af hærra eldsneytisverði, gengisbreytingum og breytingum á opinberum gjöldum. Leiðrétt fyrir þessum þáttum nam undirliggjandi tekjuvöxtur aðeins um 1%, á sama tíma og rekstrarkostnaður jókst um 7%. Framlegð af eldsneytis- og rafmagnssölu dróst saman um 2,6% og framlegðarhlutfallið lækkaði úr 22,4% í 20%. Selt magn eldsneytis minnkaði jafnframt um 4,3%, einkum vegna minni sölu til stórnotenda. Akkur segir samdrátt framlegðar milli ára allan liggja í eldsneytissölunni. Hækkun heimsmarkaðsverðs um 50–85%, eftir tegundum, jók tekjur en þrýsti jafnframt á framlegð og leiddi til lækkunar afkomuspár Festar. Bíður þess að fjárbindingin gangi til baka Sjóðstreymi og aukin skuldsetning eru meðal þeirra þátta sem Akkur telur að fylgjast þurfi sérstaklega með. Handbært fé frá rekstri nam 287 milljónum króna á öðrum ársfjórðungi, samanborið við 5,2 milljarða á sama tíma í fyrra. Nettó vaxtaberandi skuldir jukust um 6,3 milljarða frá áramótum og námu 39,2 milljörðum, eða 2,4 sinnum EBITDA. Festi segir þróunina að mestu skýrast af aukinni fjárbindingu í eldsneytisbirgðum og viðskiptakröfum vegna hækkunar eldsneytisverðs. Félagið gerir ráð fyrir að hún gangi til baka þegar verð lækkar. Akkur telur þá skýringu trúverðuga að svo stöddu en segir að endurmeta þurfi forsendurnar ef fjárbindingin reynist varanleg. Greiningarfyrirtækið heldur því kaupráðgjöf sinni óbreyttri og telur veikleikann í uppgjörinu fyrst og fremst bundinn við tímabundnar aðstæður á eldsneytismarkaði. Verðmatið er áfram 516 krónur á hlut, eða 64% yfir markaðsgenginu við útgáfu greiningarinnar.