Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Metur Eik 62% yfir markaðsverði

Read Full Article →

Greiningarfyrirtækið Akkur metur markgengi (e. target price) fasteignafélagsins Eikar í lok ársins á 23,1 krónu á hlut sem er 62% yfir núverandi 14,25 króna hlutabréfaverði félagsins. Verðmatið byggir bæði á sjóðsstreymismati og samanburðarverðlagningu. Í frumskýrslu Akkurs segir að núverandi verðlagning félagsins jafngildi aðlöguðum EV/EBITDA margfaldara upp á 16,3x og fólgin (verðtryggð) ávöxtunarkrafa eiginfjár sé 12,75% miðað við væntingar Akkurs. Bent er á að eignasafn Eikar inniheldur 124 eignir sem hljóða upp á samtals 360 þúsund fermetra. Áætlað útleiguhlutfall ársins er um 95%. Greiningarfyrirtækið segir kaup Eikar á fasteignafélaginu Festingu styðji vel við vöxt fyrirtækisins til næstu ára. Margfaldarinn í viðskiptunum hafi verið 12,7x EV/EBITDA, sem sé talsvert lægra en ofangreindur margfaldari hjá Eik. Að sama skapi sé Eik þar með að tryggja sér 20 ára leigusamninga við Samskip sem skili 1,2 milljörðum króna í EBITDA á árinu 2026. Sjá einnig Selja fasteignir um starfsemi Samskipa til Eikar Hlutabréfaverð Eikar hefur hækkað um 7,2% í ár og nemur markaðsvirði félagsins 48,4 milljörðum króna.

Share this article