Akkur hækkar afkomuspá sína fyrir Icelandair á árinu 2026 þrátt fyrir að uppgjör félagsins fyrir annan ársfjórðung hafi verið mun lakara en greiningarfyrirtækið gerði ráð fyrir. Í nýrri greiningu Akkurs er uppgjör Icelandair metið blandað en neikvætt. Afkoman var langt undir spá en vonbrigðin lágu fyrst og fremst í eldsneytiskostnaði. Á móti komu tekjur, sætanýting og einingatekjur sterkari inn en gert hafði verið ráð fyrir. Hlutabréfaverð Icelandair féll um rúm 3% við opnun markaða . Icelandair var með 15,4 milljóna dala jákvæða EBITDA á öðrum ársfjórðungi. Akkur hafði hins vegar spáð 37,7 milljóna dala EBITDA og var niðurstaðan því 22,3 milljónum dala undir spá. Rekstrartap nam 29,6 milljónum dala, samanborið við 10,3 milljóna dala rekstrartap í spá Akkurs. Tap tímabilsins nam 32,3 milljónum dala, en Akkur hafði spáð 11,2 milljóna dala tapi. Sjá einnig Icelandair tapaði 4 milljörðum þrátt fyrir mettekjur Akkur segir frávikið frá spá að mestu skýrast af eldsneyti. Virkt eldsneytisverð hafi verið 1.224 dalir á tonn, samanborið við um 975 dali í spá greiningarfyrirtækisins. Akkur telur líklegt að þar hafi spilað saman eins mánaðar töf í kostnaðarfærslu eldsneytis og miklar sveiflur í eldsneytisverði innan fjórðungsins. Sterkari tekjuhorfur vega á móti Tekjuhliðin var hins vegar sterkari. Tekjur Icelandair námu 496,2 milljónum dala á fjórðungnum, sem var 10 milljónum dala yfir spá Akkurs og 7,2% aukning frá sama tíma í fyrra. Sætanýting var 84%, samanborið við 82,2% á öðrum fjórðungi í fyrra. Samkvæmt útreikningum Akkurs jukust tekjur á hvern framboðinn sætiskílómetra um 8,6% milli ára og meðaltekjur á hvern farþegakílómetra hækkuðu um 6,2%. Framboð félagsins, mælt í framboðnum sætiskílómetrum, dróst á sama tíma saman um 1,3%. Akkur segir að tekjuþróunin bendi til þess að Icelandair hafi náð fram hærri tekjum á hvert sæti eftir brotthvarf Play af markaði. Greiningarfyrirtækið bendir á að tekjur hafi verið mettekjur á fjórðungnum og að einingatekjur hafi hækkað þrátt fyrir minna framboð. Horfur fyrir þriðja ársfjórðung séu jafnframt sterkar. Icelandair hefur leiðbeint um meteinungatekjur á þriðja fjórðungi, eða 11–15% hækkun, á sama tíma og framboð félagsins minnkar um 5%. Akkur bendir einnig á að framboð um Keflavíkurflugvöll dragist saman um 10%. Þá telur Akkur að tekjuáhætta á þriðja ársfjórðungi hallist fremur til hins jákvæða. Fyrirframgreiddar tekjur Icelandair hafi aukist um 201 milljón dala það sem af er ári, samanborið við 181 milljón dala á sama tíma í fyrra. Kostnaðarhliðin er þó áfram veikleiki. Einingakostnaður hækkaði um 16,4% milli ára og einingakostnaður án eldsneytis um 8%. Akkur bendir þar meðal annars á 14% hækkun viðhaldskostnaðar, 4,9 milljóna dala kostnað vegna raskana í rekstri og 9,6 milljóna dala neikvæð gengisáhrif. Meta virði félagsins um 127% yfir markaðsvirði Þrátt fyrir veikan annan ársfjórðung hækkar Akkur afkomuspá sína fyrir árið í heild. Greiningarfyrirtækið gerir nú ráð fyrir 202,7 milljóna dala EBITDA á árinu 2026, samanborið við fyrri spá um 196,7 milljónir dala. Spá um rekstrarhagnað hækkar úr 11 milljónum dala í 19,9 milljónir dala. Skýringin liggur meðal annars í betri horfum fyrir seinni hluta ársins. Akkur bendir á sterka leiðbeiningu fyrir þriðja ársfjórðung, hagstæðari eldsneytisstöðu og virði eldsneytisvarna. Um 47% af áætlaðri eldsneytisþörf félagsins á seinni hluta ársins eru tryggð á 684 dali á tonn og eldsneytisvarnir félagsins eru metnar 28 milljónum dala yfir markaðsvirði. Akkur segir fjárfestingarsöguna um Icelandair því standa þrátt fyrir slakan annan fjórðung. Greiningarfyrirtækið heldur óbreyttri kaupráðgjöf á bréfum félagsins en tekur fram að ráðgjöfin sé spákaupmennskutengd. Verðmat Akkurs er 1,67 krónur á hlut, samanborið við 0,736 króna lokagengi fyrir birtingu greiningarinnar. Munurinn nemur 127%. Akkur segir næstu lykilatriði vera hvort Icelandair nái að skila þeim einingatekjum sem félagið leiðbeinir um á þriðja fjórðungi, hvernig eldsneytiskostnaður færist í bókum félagsins, hvort lausn finnist í kjaraviðræðum við flugvirkja og hvaða kostnaður og sparnaður fylgi því að Boeing 757-vélarnar verði teknar úr rekstri hraðar en áður var áætlað. Icelandair hyggst ljúka notkun Boeing 757-vélanna í janúar 2027. Fjórar Airbus A320neo-vélar eiga að bætast við flotann á fyrri hluta næsta árs. Að mati Akkurs geta þær breytingar stutt við afkomu félagsins, en eldsneytisverð og framvinda eldsneytisvarna verða áfram stærstu sveifluvaldar í spánni.