Rekstrartekjur Eikar námu 3,5 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi, þar af voru leigutekjur 3,1 milljarður króna. Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu, söluhagnað og afskriftir nam 2,2 milljörðum króna og jókst um 21,4% milli ára. Þetta kemur fram í árshlutauppgjöri Eikar fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins. Hreiðar Már Hermannsson, forstjóri Eikar, segir árið fara vel af stað. „Við sjáum góðan vöxt í leigutekjum, erum að taka góð skref í fjármögnun félagsins og höldum áfram að skerpa á eignasafni okkar,“ segir Hreiðar Már í tilkynningu. Hann segir Festingu standa undir tekjuvexti fjórðungsins. Eik gekk frá kaupum á Festingu á síðasta ári og segir Hreiðar að tök séu komin á rekstur félagsins og innleiðing þess í innviði Eikar hafi gengið vel. NOI-hlutfall Eikar, það er rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir sem hlutfall af leigutekjum, var 70,7% á fjórðungnum, samanborið við 69,6% á sama tíma í fyrra. Matsbreyting fjárfestingareigna var jákvæð um 2,7 milljarða króna á fjórðungnum og söluhagnaður fjárfestingareigna nam 26 milljónum króna. Hagnaður fyrir tekjuskatt nam 1,2 milljörðum króna og heildarhagnaður samstæðunnar nam 977 milljónum króna. Hagnaður á hlut var 0,29 krónur. Bókfært virði fjárfestingareigna Eikar nam 175,2 milljörðum króna í lok mars. Heildareignir félagsins námu 186,1 milljarði króna og eigið fé 55,7 milljörðum króna. Vaxtaberandi skuldir námu 106,2 milljörðum króna og nettó skuldsetningarhlutfall var 58,6%. Eik hefur unnið að endurfjármögnun á árinu. Félagið hefur gefið út þrjá nýja skuldabréfaflokka í fjórum útboðum það sem af er ári, samtals að nafnvirði 10,7 milljarðar króna. Þá hefur félagið keypt til baka skuldabréf að nafnvirði 1,9 milljarðar króna í flokki sem er á lokagjalddaga í júlí. Hreiðar segir útgáfuáætlun félagsins hafa farið vel í fjárfesta. Hann nefnir sérstaklega skuldabréfaflokkinn EIK 120266, sem sé einn lengsti skuldabréfaflokkur Kauphallarinnar og eigi að verða „hryggjarstykkið“ í útgáfum félagsins fram á veginn. „Árangur í útgáfu þess flokks er mikil traustsyfirlýsing markaðarins,“ segir Hreiðar. Eik seldi á fjórðungnum eignina Suðurlandsbraut 20, en afhending fer fram á þriðja ársfjórðungi. Félagið seldi einnig íbúðarhúsalóð við Fossveg 3 á Selfossi, áður Eyraveg 44. Hreiðar segir þar með ljúka vel heppnaðri þróun á eign sem áður hýsti starfsemi Húsasmiðjunnar. „Eignasafnið verður áfram ítrað, við höfum myndað okkur skoðun á hverri einustu eign í safninu auk þess sem við viljum vera virk á kauphliðinni með skýra fjárfestingastefnu og arðsemismarkmið,“ segir hann. Virðisútleiguhlutfall félagsins var 94,8% í lok fjórðungsins. Handbært fé frá rekstri nam 1,5 milljörðum króna og handbært fé í lok mars nam 3,5 milljörðum króna. Félagið heldur óbreyttum horfum fyrir árið að teknu tilliti til breytinga á vísitölu neysluverðs. Rekstrartekjur ársins eru áætlaðar 14,45 til 15,05 milljarðar króna og EBITDA 9,18 til 9,55 milljarðar króna.
This article is not a security vulnerability disclosure; it is a financial earnings report for the Icelandic real estate company Eik. The content details operational revenue growth, property portfolio performance, and debt refinancing activities, with statements from the CEO. No technical security information, such as attack vectors, CVSS scores, or software versions, is present.