Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Festi lækkar afkomuspána um hálfan milljarð

Read Full Article →

Festi, móðurfélag Krónunnar, N1, Elko og Lyfju, skilaði 1,3 milljarða króna hagnaði á öðrum ársfjórðungi, samanborið við rúmlega 1,4 milljarða króna hagnað á sama tímabili í fyrra. Arðsemi eigin fjár nam 13,1%. Festi hefur lækkað afkomuspá sínu fyrir árið 2026 um 500 milljónir króna, niður í 16,0-16,5 milljarða króna. Það er rakið til lægri framlegðar af eldsneytissölu en áætlanir gerðu ráð fyrir, að því er kemur fram í afkomutilkynningu smásölufyrirtækisins. Velta samstæðunnar jókst um 6,4 milli ára og nam 11,5 milljörðum króna á ársfjórðunginum. Framlegðarstig nam 24,9% og lækkaði um 0,4 prósentustig. Sé áhrif gengis, breytinga á heimsmarkaði eldsneytis og breytinga opinberra gjalda á eldsneyti um síðustu áramót tekin út fyrir sviga þá hækkaði framlegðarstigið um 0,9 prósentusig. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) nam 3,9 milljörðum króna og lækkaði um 0,8% milli ára. „Rekstur samstæðunnar gekk ágætlega á fjórðungnum, þó að framlegð af eldsneyti hafi verið undir áætlunum og fjöldi seldra eldsneytislítra dregist saman um 4,3%, einkum vegna minni sölu til stórnotenda. Góður gangur var í öðrum vöruflokkum þar sem sala og framlegð jukust milli ára. Afgreiðslufjöldi þvert á samstæðuna stóð nánast í stað milli ára en körfustærð stækkaði þar sem fjöldi seldra vara jókst um 3,7%,“ segir Ásta S. Fjeldsted , forstjóri Festi. Tap hjá N1 Hún segir að horfur fyrir seinni hluta ársins mótist af aukinni óvissu í alþjóðamálum. Ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs og spenna á eldsneytismörkuðum kalli á áframhaldandi aðhald og sveigjanleika í rekstri. „Sú mikla hækkun eldsneytisverðs á heimsmarkaði sem hefur orðið mun hafa áhrif á afkomu N1 á seinni helmingi ársins. Á móti er Krónan í mikilli sókn og útlit er fyrir að hún skili áfram kröftugum og arðbærum vexti. ELKO og Lyfja halda sínum takti og netverslanir þeirra auka mikið við sig veltu ár frá ári,“ segir Ásta. Krónan skilaði 1,4 milljarða króna hagnaði á fyrri árshelmingi, samanborið við 1,1 milljarðs hagnað á sama tímabili í fyrra. Velta dagvöruverslunarinnar jókst um 10,5% milli ára. N1 tapaði 1,3 milljónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins, samanborið við 426 milljóna króna hagnað á sama tímabili í fyrra.

Share this article