Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Elds­neytis­hækkunin jók skuldir Festar um milljarða

Read Full Article →

Mikil hækkun elds­neytis­verðs á heims­markaði setti mark sitt á rekstur Festar á öðrum árs­fjórðungi og hafði um­tals­verð áhrif á bæði af­komu N1 og fjár­hag sam­stæðunnar. Tekjur af elds­neyti og raf­magni námu 11,1 milljarði króna á fjórðungnum og jukust um 9% frá sama tíma í fyrra. Selt magn elds­neytis dróst þó saman um 4,3%, einkum vegna minni sölu til stór­not­enda. Tekju­aukningin skýrist því ekki af meiri sölu heldur fyrst og fremst af verðhækkunum. Heims­markaðsverð elds­neytis var 50–85% hærra en á sama tíma í fyrra, eftir tegundum, auk þess sem breytingar urðu á opin­berum gjöldum um síðustu áramót. Fram­legðin minnkaði þrátt fyrir meiri tekjur Hærri tekjur skiluðu sér ekki í betri af­komu af elds­neytissölunni. Fram­legð af elds­neyti og raf­magni nam 2,2 milljörðum króna og dróst saman um 2,6% milli ára. Fram­legðar­hlut­fallið lækkaði um 2,4 pró­sentu­stig og nam 20%. Festi segir fram­legð af elds­neyti hafa verið undir áætlunum og hefur lækkað EBITDA-spá sína fyrir árið um 500 milljónir króna vegna þess. Félagið gerir nú ráð fyrir að EBITDA ársins verði á bilinu 16 til 16,5 milljarðar króna. Áður hafði verið reiknað með 16,5 til 17 milljörðum. Stjórn­endur gera ráð fyrir að fram­legð af elds­neytissölu verði áfram undir þrýstingi á seinni hluta ársins vegna óvissu á alþjóð­legum mörkuðum og mögu­legra truflana í að­fanga­keðjum. Milljarðar bundnir í birgðum og kröfum Hækkun elds­neytis­verðs hafði jafn­framt mikil áhrif á efna­hags­reikning Festar. Birgðir sam­stæðunnar jukust um 3,3 milljarða króna frá áramótum, eða 23%, og námu 17,5 milljörðum í lok júní. Við­skipta­kröfur jukust um 731 milljón króna. Festi segir aukna fjár­bindingu í birgðum og við­skipta­kröfum að mestu tengjast hækkun elds­neytis­verðs. Félagið gerir ráð fyrir að fjár­bindingin gangi til baka þegar verð á elds­neyti lækkar á ný. Nettó vaxta­berandi skuldir jukust um 6,3 milljarða króna frá áramótum og námu 39,2 milljörðum í lok júní. Hlut­fall nettóskulda af EBITDA hækkaði úr 2,1 í 2,4. Á sama tíma lækkaði hand­bært fé úr 5,9 milljörðum króna í 1,3 milljarða. Hand­bært fé frá rekstri nam aðeins 255 milljónum króna á fyrri árs­helmingi, saman­borið við 7,6 milljarða á sama tíma í fyrra. Félagið segir muninn að mestu skýrast af tíma­bundinni fjár­bindingu í rekstrinum. Festi hefur að­gang að fjögurra milljarða króna lána­línum og telur lausa­fjár­stöðu sína áfram ágæta. N1 fór úr hagnaði í tap Áhrifin sjást skýrt í af­komu N1. EBITDA félagsins á fyrri árs­helmingi nam rúmum tveimur milljörðum króna, saman­borið við 2,4 milljarða á sama tíma í fyrra. Rekstrar­hagnaður N1 lækkaði úr 867 milljónum króna í 397 milljónir. Eftir fjár­magns­liði og skatta var niður­staðan lítils­háttar tap, um ein milljón króna, saman­borið við 426 milljóna króna hagnað á fyrri helmingi síðasta árs. Festi gerir ráð fyrir að allir helstu rekstrarþættir sam­stæðunnar bæti af­komu sína á árinu nema N1, sem verði fyrir mestum áhrifum af um­rótinu á alþjóð­legum elds­neytis­mörkuðum.

Share this article