Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Besti markmaðurinn og ungi leikmaðurinn komast ekki í úrvalslið HM

Read Full Article →

Alþjóðlega knattspyrnusambandið FIFA birti í kvöld úrvalslið heimsmeistaramótsins í fótbolta. Það voru stuðningsmenn sem kusu í liðið og ýmislegt sem kemur á óvart. Til að mynda kemst besti markmaður mótsins að mati mótshaldara, Spánverjinn Unai Simón, ekki í liðið en í hans stað er Vozinha sem fór á kostum á mótinu í marki Grænhöfðaeyja. Ekki er heldur pláss fyrir miðvörðinn Pau Cubarsí, sömuleiðis frá Spáni, sem var valinn besti ungi leikmaður mótsins. Frakkinn Dayot Upamecano og Argentínumaðurinn Lisandro Martínez eru í hjarta varnarinnar. Alls eru þrír Spánverjar og þrír Frakkar í liðinu og tveir Argentínumenn. Jude Bellingham er sá eini sem kemst í liðið úr bronsliði Englendinga og Erling Braut Haaland er fremsti maður. Úrvalslið HM 2026 Vozinha (Grænhöfðaeyjar) Pedro Porro (Spánn) Dayot Upamecano (Frakkland) Lisandro Martínez (Argentína) Marc Cucurella (Spánn) Jude Bellingham (England) Michael Olise (Frakkland) Rodri (Spánn) Kylian Mbappé (Frakkland) Lionel Messi (Argentína) Erling Haaland (Noregur)

Share this article