Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

5 (mis) gagnlegar staðreyndir um HM í fótbolta

Read Full Article →

Flautað er til leiks á heimsmeistaramóti karla í fótbolta í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada í dag. Af því tilefni má hér finna 5 staðreyndir um mótið, sumar gagnlegar, aðrar minna gagnlegar: 25 ár á milli yngsta og elsta leikmannsins Rúmlega 25 ár eru á milli yngsta og elsta leikmannsins á HM í ár. Craig Gordon, markvörður Skota, er 43 ára og 162 daga gamall í dag, þegar flautað verður til leiks, og Gilbert Mora verður 17 ára og 240 daga gamall. Síðasti dansinn Meira um aldur. Talið er að þessir leikmenn stígi sinn síðasta dans á vellinum á þessu heimsmeistaramóti: Lionel Messi, fyrirliði Argentínu, á afmæli 24. júní og verður því 38 ára þegar Argentína mætir Alsír í fyrsta leik liðsins á mótinu en 39 ára í síðasta leiknum í riðlakeppninni, gegn Jórdaníu, 28. júní. Cristiano Ronaldo, fyrirliði Portúgal, er 41 árs. Ronaldo varð Evrópumeistari með Portúgal 2016 en hefur ekki fagnað heimsmeistaratitli. Ef Portúgal lyftir bikarnum í lok móts verður Ronaldo elsti leikmaðurinn sem verður heimsmeistari. Guillermo Ochoa, markmaður Mexíkó, er ögn minna þekkt nafn en líkt og hjá Ronaldo og Messi er þetta sjötta heimsmeistaramótið hans. Það út af fyrir sig er afrek. En þetta verður líklega það síðasta. Þessir eru einnig taldir líklegir til að leggja skóna á hilluna eftir HM, að minnsta kosti landsliðsskóna: Neymar, Brasilía Manuel Neuer, Þýskaland Luka Modric, Króatía Edin Dzeko, Bosnía og Hersegóvína. Son Heung-min, Suður-Kórea Mohamed Salah, Egyptaland Sadio Mane, Senegal Riyad Mahrez, Alsír Kevin De Bruyne, Belgía Virgil van Dijk, Holland James Rodriguez, Kólumbía Svimandi hátt miðaverð Miðaverð er margfalt hærra en á síðustu mótum. Dýrasti miðinn á HM í Katar 2022 kostaði um 200 þúsund krónur en dýrasti miðinn á HM í ár kostar tæplega 33 þúsund dollara, eða um fjórar milljónir króna. Skýringin er í stuttu máli kvik verðlagning ( e . Dynamic pricing); því oftar sem leitað er að miðum á sölusíðum, því hærra verður verðið. Enn eru mörg þúsund miðar óseldir á leikina 104. Elgur, jagúar og skallaörn Lukkudýr hafa sett svip sinn á HM síðan 1966 þegar ljónið Willie mætti fyrst á völlinn. Appelsína, hundar og beltisdýr hafa sést á vellinum á HM en í ár eru lukkudýrin þrjú, eitt fyrir hvern gestgjafa. Elgurinn Hlynur ( e. Maple the Moose), jagúarinn Zayu ( e. Zayu the Jaguar) og skallaörninn Clutch ( e. Clutch the Bald Eagle) eru fulltrúar Kanada, Mexíkó og Bandaríkjanna og eiga ekki eftir að fara fram hjá áhorfendum næstu vikurnar. Tölur, tölur, tölur Fyrir áhugafólk um tölfræði eru hér helstu tölur HM í ár: Þetta er í fyrsta sinn sem HM fer fram í þremur löndum. Gestgjafarnir í ár eru Bandaríkin, Mexíkó og Kanada. Leikirnir fara fram í nokkrum tímabeltum og eru 14 mismunandi leiktímar. Ísland sleppur ágætlega, yfirleitt er kvöldleikur sem hefst klukkan 19 eða 20 öll kvöld, en aðrir leikir á undan eða á eftir. 48 lönd etja kappi á mótinu og hafa aldrei verið fleiri. 13 þjóðir kepptu á fyrsta HM í Úrúgvæ árið 1930. Frá 1998 hafa þátttökuþjóðirnar verið 32. 1.248 leikmenn eru skráðir til leiks. Leikirnir verða alls 104 . Allir eru í beinni á Rúv. Jóhann Páll Ástvaldsson fór yfir það helsta um leikina og leiktímana:

Share this article