Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

HM hefst með þremur stjörnum prýddum setningarhátíðum

Read Full Article →

Heimsmeistaramót karla í fótbolta 2026 hefst eftir rétt rúman mánuð og verður einstakt í sögulegu samhengi. Ekki aðeins vegna þess að það verður stærsta HM frá upphafi með 48 þátttökuþjóðum, heldur einnig vegna þess að mótið verður nú í fyrsta sinn haldið í þremur löndum samtímis, Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada. Á síðasta heimsmeistaramóti í Katar 2022 voru 32 þátttökuþjóðir. Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, hefur staðfest að setningarhátíðir mótsins verði þrjár, ein í hverju gestgjafalandi. Mexíkó byrjar fimmtudaginn 11. júní og svo verða Kanada og Bandaríkin með sínar hátíðir daginn eftir. Mótið hefst formlega þann 11. júní í Mexíkóborg á hinum sögufræga Estadio Azteca, þar sem heimamenn í Mexíkó mæta Suður-Afríku í fyrsta leik mótsins. Leikvangurinn verður þar með sá fyrsti í sögunni til að hýsa setningarleik heimsmeistaramóts í þriðja sinn, eftir mótin 1970 og 1986. Mexíkóska setningarhátíðin hefst 90 mínútum fyrir leik og verður litrík menningarveisla þar sem tónlist og þjóðleg arfleifð landsins verða í forgrunni. Grammy-verðlaunasveitin Maná mun leiða dagskrána ásamt söngvurunum Alejandro Fernández og Belinda. Þá verða einnig innfæddir listamenn og þjóðdansarar hluti af sýningunni sem á að endurspegla menningu og sögu Mexíkó. Alanis Morissette og Michael Bublé í Kanada Daginn eftir, 12. júní, færist sviðsljósið til Kanada þar sem setningarhátíð landsins fer fram á BMO Field leikvanginum í Torontó áður en Kanada mætir Bosníu og Hersegóvínu. Þar munu meðal annars koma fram kanadísku tónlistarstjörnurnar Alanis Morissette, Michael Bublé og Alessia Cara auk Elyanna, Jessie Reyez, Nora Fatehi, Sanjoy, Vegedream og William Prince. FIFA segir að hátíðin muni leggja áherslu á fjölbreytileika og samstöðu kanadísks samfélags með sérstökum sjónrænum áhrifum tengdum HM-verðlaunastyttunni. Katy Perry og Future á bandarísku hátíðinni Síðar sama dag verður síðan bandaríska opnunarhátíðin haldin á SoFi leikvanginum í Los Angeles áður en Bandaríkin mæta Paragvæ. Þar verður lögð áhersla á stórbrotna skemmtun í anda bandarískra stórviðburða. Meðal þeirra listamanna sem stíga á svið eru poppstjarnan Katy Perry, rapparinn Future, brasilíska söngkonan Anitta og LISA úr hljómsveitinni Blackpink. 104 leikir og allir í beinni á RÚV HM 2026 verður stærsta heimsmeistaramót sögunnar með alls 104 leikjum í 16 borgum víðs vegar um Norður-Ameríku. Úrslitaleikurinn verður leikinn 19. júlí á MetLife leikvanginum í New Jersey. Þetta verður jafnframt aðeins í annað sinn sem HM er haldið í fleiri en einu landi, en áður var mótið sameiginlega haldið í Japan og Suður-Kóreu árið 2002. Með því að halda þrjár setningarhátíðir vill FIFA undirstrika fjölbreytni gestgjafaþjóðanna og gera hverju landi kleift að setja sinn sérstaka svip á upphaf stærsta íþróttaviðburðar heims. Allir leikir HM verða sýndir beint á rásum RÚV sem og setningarhátíðirnar.

Share this article