Heimsmeistaramót karla í fótbolta byrjar í dag og stendur yfir til 19. júlí. Allir 104 leikir mótsins verða sýndir beint á RÚV. Keppni hefst með tveimur leikjum í A-riðli. Upphafsleikur mótsins verður á hinum sögufræga Azteca velli í Mexíkóborg. Þar mæta heimamenn í Mexíkó liðsmönnum Suður-Afríku. Sömu lið mættust í upphafleiks HM 2010 þar sem liðin gerðu 1-1 jafntefli. Stofan hefst klukkan 18:00. Suður-Kórea og Tékkland mætast svo klukkan 02:00 um nótt á Estadio Guadalajara í Zapopan í Mexíkó. Leikir dagsins: Mexíkó - Suður-Afríka. Klukkan 19:00 á RÚV 2 Suður-Kórea - Tékkland. Klukkan 02:00 á RÚV. Stofan hitar upp fyrir leiki á hverjum degi. Oftast er Stofa fyrir leiki um eftirmiðdegi og snemma kvölds. HM kvöld gerir upp leiki dagsins á hverjum leikdegi. Þá er einnig Stofa fyrir stærri leiki snemma dags.