10 dagar eru í að heimsmeistaramótið í fótbolta hefjist þegar Mexíkó og Suður-Afríka mætast í Mexíkó. Lið heimsins eru í óðaönn að undirbúa sig fyrir mótið og voru þrír æfingaleikir í dag. Noregur virðist halda góðu formi úr undankeppninni og vann Svíþjóð 3-1 í Osló en bæði lið verða á HM. Tyrkir voru enn beittari og unnu Norður-Makedóníu 4-0. Tyrkir eru á HM í fyrsta sinn síðan 2002 en Makedónar eru ekki með í ár. Þá vann Austurríki Túnis 1-0 í Vín. Báðar þjóðir eru á HM. Í kvöld mætast svo Kólumbía og Kosta Ríka. Næstu daga verða svo fjölmargir vináttuleikir áður en HM hefst, m.a. leikur Argentínu og Íslands 9. júní. Jörgen Strand Larsen skoraði tvívegis gegn Svíþjóð í kvöld.EPA / Lise Aserud