Á sunnudaginn kemur í ljós hvort Spánn eða Argentína verður heimsmeistari karla í fótbolta árið 2026. Fyrirliði heimsmeistaranna mun þá lyfta heimsmeistarabikarnum og leikmenn og þjálfarar fá gullmedalíur líkt og venja er. Ein nýjung verður þó á mótinu í ár; leikmenn og þjálfarar fá einnig gullhring í verðlaun til marks um afrekið. Slíkt þekkist í bandarískum íþróttum þar sem það eru reyndar yfirleitt sigurliðin sem kaupa hringana sjálf en engir verðlaunapeningar eru afhentir. Sigurvegarar ofurskálarinnar í NFL-deildinni í amerískum fótbolta fá hring og það sama þekkist í NBA í körfubolta, NHL í íshokkí og MLB í hafnabolta. Heimsmeistaramótið hefur að stærstum hluta verið spilað í Bandaríkjunum og þar munu brons- og úrslitaleikirnir einnig fara fram. Bronsleikurinn í Miami, úrslitin í New Jersey. Á verðlaunaafhendingunni, sem Donald Trump bandaríkjaforseti mun taka þátt í, fá fyrirliði og þjálfari sigurliðsins tvo lánshringa og svo verða hringarnir sérhannaðir og heimsmeistararnir fá sína hringa því nokkrum dögum eftir sjálfan úrslitaleikinn. Alls verða 2026 hringar framleiddir, sigurliðið fær 30 af þeim og hinir fara í sölu. Ekki kemur fram í frétt FIFA hvað stykkið mun kosta.