FRÉTTAVAKT HM í fótbolta 2026 HM-vaktin: Mexíkóar leiða og mariachi tónlistin ómaði Fyrsti leikur HM 2026 er milli Mexíkó og Suður-Afríku í Mexíkóborg. Hér verður fylgst með öllu í lifandi fréttavakt. Mexíkó leiðir 1-0 í upphafi seinni hálfleiks. Quinones skoraði fyrsta mark heimsmeistaramótsins eftir mistök í uppspili Suður-Afríku. Mexíkó er fyrst ríkja til að halda HM þrisvar. Azteca-völlurinn í Mexíkóborg er í þriðja sinn vettvangur setningarleiks HM. Leikurinn hófst klukkan 19:00 og er á RÚV2. Jóhann Páll Ástvaldsson og Einar Örn Jónsson 11. júní 2026 kl. 15:04, uppfært kl. 20:12 A A A Þessum viðburði er lokið og því hefur streymið verið fjarlægt. 11. júní 2026 kl. 20:35 GOOOOOOOOOOOOL Vá! Þakið gjörsamlega rifnar af Azteca vellinum. Jimenez kemur liðinu yfir með skalla eftir fyrirgjöf. Það er enginn varnarmaður Suður-Afríku að pæla í honum og skorar hann af öryggi á fjærstönginni eftir fyrirgjöf Alvarado. Goooooooooool heyrist óma um völlinn og það er gripið aftur í ljúfa mariachi tóna. Við förum svo bara beint í vatnspásu. Staðan er 2-0 eftir 68 mínútna leik. 11. júní 2026 kl. 20:33 Sá yngsti kemur inn á Gilberto Mora er mættur inn á em margir telja að hann muni verða ungstirni mótsins. Hann er yngsti leikmaðurinn á HM. Mexíkóarnir eru ekkert að flýta sér um of eins og er. En ef það gerist eitthvað þá er það Quinones sem keyrir liðið áfram. 11. júní 2026 kl. 20:23 Þeir sjá rass - pressa! Eiður Smári Guðjohnsen rifjaði upp tíma sinn á EM 2016 þegar rætt var um Guillermo Ochoa, en hann er á sínu sjötta heimsmeistaramóti. Umræðuna má sjá hér að neðan og viðtal við Ochoa. 00:00 03:58 Þá átti Óskar Hrafn Þorvaldsson góð ummæli þegar hann ræddi pressu Mexíkóa. Hann líkti pressunni við körfuboltapressu. Þeir sjá rass - pressa! Ekki flókin uppskrift. 00:00 00:17 11. júní 2026 kl. 20:17 – uppfært Rautt spjald! Sithole kórónar rosalegan leik sinn og fær rautt spjald, en hann gaf einnig markið. Mexíkóar sleppa í gegn og Sithole tekur Gutierrez niður þegar hann er að vaða inn á teiginn. Dómarinn hikaði ekki við að lyfta rauða kortinu. Útlitið er afar svart fyrir Bafana Bafana menn. Staðan er 1-0 fyrir Mexíkó eftir 50 mínútna leik. Hér má sjá rauða spjaldið. 00:00 00:43 11. júní 2026 kl. 20:14 Hvað eru þeir að gera? Það var talað um það fyrir mót að Suður-Afríkumenn væru óhræddir við að spila boltanum út frá öftustu línu. Það hefur heldur betur reynst satt. Fyrsti hluturinn sem gerðist í seinni hálfleik var að Williams í markinu gaf beint á Mexíkóa í teig sínum. Mikil hætta skapaðist en varnarmaður Suður-Afríku náði að lokum að fleygja sér fyrir boltann. Mexíkóar eru í raun hættulegastir þegar Suður-Afríkumenn eru að spila út. Staðan er 1-0 fyrir Mexíkó á 47. mínútu. 11. júní 2026 kl. 20:02 Metilsmenn segja Argentínu líklega Metilsmenn, sem hafa birt spár fyrir kosningar og íþróttaviðburði síðustu ár, telja Argentínumenn sigurstranglegasta á HM. Þeir telja 18% líkur á að Messi og félagar verji titilinn. Hérna má sjá allar greiningarnar, þar sem hver og einn af leikjunum 104 er tekinn fyrir. Spásíða Metils fyrir HM. 11. júní 2026 kl. 19:55 – uppfært Quiñones allt í öllu Julián Quiñones ógnar í sífellu hérna. Hann átti skot í stöng rétt í þessu og er alveg óhræddur við að láta vaða. Hann er kominn með fjögur skot alls. Suður-Afríkumenn færðu sig aðeins upp á skaftið eftir vatnspásuna og áttu sína fyrstu marktilraun þegar Lyle Foster skallaði fram hjá. Ný HM stjarna fædd? IMAGO Annars hafa Mexíkóar verið yfir í þessum leik. Pressan á Azteca vellinum virðist vera að fara ágætlega í þá. Quiñones leikur með Al-Qadsiah í Sádi-arabísku deildinni. Hann er 29 ára og byrjaði að leika með Mexíkó fyrir þremur árum, en er fæddur í Kólumbíu. Hann er með 4 mörk í 24 landsleikjum en raðar inn mörkum í félagsliðabolta og er með 53 mörk í 59 deildarleikjum. Staðan er 1-0 rétt áður en flautað verður til hálfleiks. 11. júní 2026 kl. 19:31 Vatnspásan góða Þá fáum við fyrstu vatnspásu mótsins! Leikurinn verður stöðvaður í þrjár mínútur í hvorum hálfleik þannig það má segja að leikurinn skiptist í raun í fjóra leikhluta. Mögulega gefur þetta Suður-Afríkumönnum tækifæri til að endurskipuleggja sig. Mexíkó leiðir 1-0 eftir 25 mínútna leik. 11. júní 2026 kl. 19:16 – uppfært Mexíkó kemst yfir eftir mistök! Fyrsta mark HM er komið! Suður-Afríkumenn gera herfileg mistök og Sithole tapar boltanum við vítateig sinn. Quinones skýtur í gegnum klof Williams og allt tryllist á Azteca vellinum. Það má heyra mariachi tónlist óma um allt. Þetta er byrjað! Mexíkó leiðir 1-0 eftir tíu mínútna leik. 00:00 01:17 11. júní 2026 kl. 19:11 Þvílík varsla! Þarna ver Ronwen Williams í marki Suður-Afríka virkilega vel frá Jimenez. Mexíkóarnir treysta á fyrirgjafir frá bakvörðum og ætla að finna aðalmanninn sinn í teignum. Uppskriftin virkaði þarna fullkomlega en Williams ver fast skot Jimenez vel. Staðan er 0-0 eftir fimm mínútna leik. 11. júní 2026 kl. 19:07 Þetta er byrjað! Sá fyrsti af 104 leikjum HM er hafinn. Mexíkóar byrja með boltann og heimafólk í stúkunni fagnar hverri sendingu með háværu „óle“. Þeir ætla ekkert að hleypa Suður-Afríkumönnum í leikinn. Staðan er 0-0 eftir eina mínútu. 11. júní 2026 kl. 19:06 Sturlaður þjóðsöngur Mexíkóa Þjóðsöngur Mexíkó var hreint út sagt ótrúlegur. Þetta var gæsahúðar augnablik. Þetta er bresta á. 11. júní 2026 kl. 19:05 Stutt í leik! Hörður Magnússon og Ólafur Kristjánsson lýsa leiknum. Þetta er að bresta á! Við fengum að njóta afar ljúfra tóna frá Andrea Boccelli og EJAE rétt í þessu. 11. júní 2026 kl. 18:21 Sá yngsti Gilberto Mora er 17 ára og 240 daga gamall. Hann er yngsti leikmaður á mótinu en alls eru 1.248 leikmenn á mótinu í þetta sinn. Hann varð áður sá yngsti til að leika í sögu efstu deildar í Mexíkó er hann lék með Tijuana í ágúst 2024. Í janúar 2025 varð hann yngstur til að leika fyrir Mexíkó, 16 ára gamall. 11. júní 2026 kl. 18:02 Byrjunarliðin klár: Alvarez og Mora byrja ekki Byrjunarliðin eru klár og Stofan hefur hafið upphitun sína á RÚV2. Mexíkó: Raúl Rangel (markvörður) César Montes (fyrirliði) Johan Vásquez Israel Reyes Jesús Gallardo Erik Lira Álvaro Fidalgo Brian Gutiérrez Raúl Jiménez Julián Quiñones Roberto Alvarado Suður-Afríka: Ronwen Williams (markvörður og fyrirliði) Aubrey Modiba Mbekezeli Mbokazi Nkosinathi Sibisi Khuliso Mudau Ime Okon Teboho Mokoena Sphephelo Sithole Jayden Adams Lyle Foster Iqraam Rayners 11. júní 2026 kl. 17:52 Allt að verða klárt Stuðningsfólk er að flykkjast á völlinn og setningarhátíðin er hafin. Við fáum að sjá það helsta úr henni í Stofunni fyrir leik. Þar koma meðala annars J Balvin, Burna Boy, Shakira og Tyla fram. Hér má sjá stemninguna hjá stuðningsmönnum Mexíkó fyrir leik. 00:00 00:16 11. júní 2026 kl. 17:39 – uppfært Hvernig verður HM? Fótboltaáhugamenn eru enn að ná utan um mótið. Hér er einfalda útgáfan af því hvernig þetta verður. Leikirnir fara fram í nokkrum tímabeltum og eru 14 mismunandi leiktímar. Ísland sleppur ágætlega, yfirleitt er kvöldleikur sem hefst klukkan 19 eða 20 öll kvöld, en aðrir leikir á undan eða á eftir. Alls eru 104 leikir og 29 af þeim hefjast eftir miðnætti. Eftir að riðlakeppni er búinn eru fimm leikir sem hefjast eftir miðnætti. Undanúrslit og úrslit verða klukkan 19:00. Á RÚV.is verður lifandi fréttavakt yfir daginn en henni lýkur þegar næturleikir hefjast. Í fréttavakt birtast helstu atvik úr leiknum og hitað verður upp fyrir leiki. Mörkin úr öllum leikjum koma svo einnig inn í sér færslu á vef RÚV. Hér má sjá yfirferð yfir allt það helsta sem þarf að hafa í huga. 00:00 01:14 11. júní 2026 kl. 17:29 – uppfært Er Mexíkó klárt í slaginn? Það er óhætt að segja að það sé mikið álag á leikmönnum Mexíkó. Þrátt fyrir að umtalið fyrir mót hafi að mestu verið um Bandaríkin þá verða 13 leikir í Mexíkó. Mexíkóar eru næstum-því lið HM. Þeir eru nánast alltaf með og hafa verið með á síðustu átta mótum en alltaf detta þeir út í 16-liða úrslitum. Á HM í Katar flaug liðið út í riðlakeppni. Mexíkó er gríðarleg fótboltaþjóð en svo virðist vera sem að leikmenn séu afar heimakærir en þeir eru í það minnsta líklegri til að halda sig heima miðað við leikmenn frá Suður-Ameríku. Það er spurning hvernig pressan frá 87.000 trylltum Mexíkóum fer í heimamenn. Ekki er víst hversu margir Suður-Afríkumenn verða á vellinum, en hins vegar borgaði íþróttamálaráðuneytið þar í landi undir 20 manns. Þannig það verða að minnsta kosti 20 á móti 86.980. Staða á heimslista FIFA: 15. Leiðin á HM Liðið hefur ekki náð miklum takti þar sem liðsmenn þurftu ekki að slípa sig saman í gegnum undankeppni. Enda fékk liðið miða á mótið sem ein af gestgjafaþjóðunum. Liðið mun leita mikið í kringum miðsvæðið og kantmenn leita inn á völlinn. Bakverðir munu koma í utanáhlaup og leita að fyrirgjöfum á Jimenez. Þá myndast mikil hætta eftir föst leikatriði. Liðsmenn Mexíkó léttir í lund. IMAGO Stjörnuleikmenn Framherjinn Raul Jimenez er þeirra helsta stjarna en hann hefur um árabil leikið í Englandi og gekk nýverið aftur til liðs við Wolves. Hann hefur skorað 45 mörk í 124 landsleikjum og er þetta líklega síðasta HM móts þessa 45 ára gamla framherja. Miklar vonir eru þó bundnar við Armando Gonzalez framherja Chivas og gæti hann einnig spilað frammi. Mikið mun mæða á Edson Álvarez sem lék áður með Ajax og West Ham en leikur í dag með Fenerbahce. Hann verður djúpur á miðju og er algjört akkeri. Gilberto Mora í leik gegn Argentínu á HM U20 fyrir ári síðan. EPA / ESTEBAN GARAY Þá hefur mikið verið rætt um hinn 17 ára gamla Gilberto Mora í aðdraganda móts. Hann hefur verið fastamaður í Tijuana síðustu ár þrátt fyrir ungan aldur og er búist við því að hann byrji á miðjunni hjá Mexíkó. Ef til vill verður hann ein af vonarstjörnum mótsins. Hér má sjá viðtal við Mora fyrir mót. 00:00 01:34 11. júní 2026 kl. 17:12 Hvernig verður Stofan? Sérfræðingar Stofunnar hita upp fyrir valda leiki á mótinu. Edda Sif Pálsdóttir og Helga Margrét Höskuldsdóttir stýra Stofunni og helstu sérfræðingar Stofunnar verða Albert Brynjar Ingason, Eiður Smári Guðjohnsen, Adda Baldursdóttir, Óskar Hrafn Þorvaldsson og Arna