Aðildarríki Knattspyrnusambands Evrópu, UEFA, hafa samþykkt að sniðganga öll mót FIFA, þar á meðal HM karla og kvenna og HM félagsliða, ef FIFA lætur verða af áformum sínum um að selja hlut í Heimsmeistamótinu í fótbolta. 55 ríki eru í sambandinu, þar á meðal Knattspyrnusamband Íslands. Tillagan var borin upp á neyðarfundi UEFA í dag. Þorvaldur Örlygsson, formaður, og Eysteinn Pétur Lárusson, framkvæmdastjóri, sátu fundinn fyrir hönd KSÍ. Boðað var til fundarins vegna fyrirætlana FIFA um stofnun nýs viðskiptafélags sem á að heita FIFA Forward Enterprise. UEFA hefur gagnrýnt áformin harðlega. Sambandið segir FIFA fara langt yfir mörk og að ekki eigi að vera hægt að selja framtíð fótboltans með þessum hætti. Fréttin verður uppfærð.