Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

FIFA og UEFA deila um sömu 365 dagana

Read Full Article →

„Það eru ekki nema 365 dagar í dagatalinu okkar. FIFA er að færa sig inn á svið sem Evrópska knattspyrnusambandið hefur hingað til talið að það eigi – og við sjáum ekki fyrir endann á því.“ Þetta segir Björn Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafi. Björn var gestur Spegilsins í gærkvöld og ræddi upphlaupið innan alþjóðaknattspyrnunnar. Öll aðildarsambönd Evrópska knattspyrnusambandsins (UEFA) samþykktu í gær á neyðarfundi að þau myndu sniðganga HM í fótbolta ef áform forseta FIFA, Gianni Infantino, um að selja 21 prósents hlut í mótinu ná fram að ganga. Áformin ganga út á að FIFA stofni dótturfélag sem allar tekjuberandi einingar sambandsins yrðu færðar undir. HM karla og kvenna, HM félagsliða og allt sem tengist markaðs- og ímyndarrétti þessara keppna. Vitanlega munar þar langmestu um HM karla. „Þessi 21 prósent yrðu seld fjárfestum sem sérstaklega yrðu dregnir að borðinu vegna sérfræðiþekkingar sem tengist vexti íþrótta, sjónvarpsútsendingum og markaðssetningu. Það yrðu nánast alfarið bandarískir aðilar,“ segir Björn. Dautt ef Evrópa verður ekki með Fari svo að evrópsku samböndin standi við hótunina eru áformin, að mati Björns, fallin um sjálf sig. „Ef UEFA stendur í lappirnar og tekur ekki þátt þá getur FIFA ekki haldið þessu til streitu. Þeir munu ekki geta selt eignarhlutinn á eðlilegu verði.“ Deilur FIFA og UEFA sem hafa nú blossað upp í fjölmiðlum eiga sér nokkurn aðdraganda. FIFA hefur á síðustu árum reynt að auka hlutdeild sína á knattspyrnusviðinu. Stækkun Heimsmeistaramóts félagsliða er sennilega stærsta skrefið. FIFA vill að með tíð og tíma verði mótið stórviðburður á borð við HM landsliða (þ.e. HM ) en með því er skorin sneið af köku Evrópska sambandsins og Meistaradeildar Evrópu, stærstu keppni félagsliða í heimi. „Þeir eru að keppa um sömu auglýsendur og svo framvegis. Það eru líka allir komnir með nóg af því hvað er verið að spila mikið, en FIFA vill enn vaxa.“ Infantino hefur áður ýjað að því að hugsanlega ætti að halda HM þriðja hvert ár, í staðinn fyrir fjórða hvert ár. Ef það yrði gert, þyrfti líklega að hliðra Evrópumótinu í fótbolta og jafnvel fækka þeim. Mikið í húfi fyrir aðrar þjóðir Þegar Gianni Infantino var kjörinn forseti FIFA árið 2016 var eitt hans helsta kosningaloforð að auka beinar greiðslur til knattspyrnusambanda heimsins. Hann hefur staðið við það. FIFA gerir upp í fjögurra ára fjárhagstímabilum, sem hvert nær frá einu heimsmeistaramóti til þess næsta. Áður en Infantino tók við embætti fékk hvert knattspyrnusamband í sinn hlut um 3 milljónir dollara (370 milljónir króna) á hverju fjögurra ára fjárhagstímabili. Í dag er þessi upphæð 8 milljónir dollara (1 milljarður króna). Hér er um að ræða fasta greiðslu fyrir hvert aðildarsamband, hvort sem það er enska sambandið, KSÍ eða Knattspyrnusamband Máritíus. Ef áform FIFA verða að veruleika fengi hvert aðildarsamband sem fellst á áformin um 20 milljónir dollara (2,5 milljarða króna) í eins skiptis greiðslu – þ.e. 4,2 milljörðum dollara sem á að fást fyrir eignarhlutinn skipt niður á 211 aðildarsambönd FIFA. Í ofanálag yrði fasta greiðslan fyrir hvert fjögurra ára fjárhagstímabil (sú sem núna stendur í 8 milljónum dollara) hækkuð í 20 milljónir dollara. Það er ágætis vísbending um það hversu mikil tekjuaukning er áformuð. Björn segir þetta skýra þann mikla stuðning sem Infantino hefur meðal knattspyrnusambanda heimsins – óháð því sem skrifað er um hann á síðum blaðanna. Þegar kemur að kosningum innan FIFA hefur hvert land eitt atkvæði. „Það sem mestu máli skiptir hjá flestum aðildarfélögum er að sækja sem mestar tekjur,“ segir Björn. „Honum hefur gengið vel að láta þessar tekjur vaxa geysilega. Þetta er sett á vogarskálarnar í atkvæðagreiðslu á móti öllum pirringnum og fussinu og sveiinu sem heyrist.“ Deilur FIFA og UEFA snúast í grunninn um peninga. Samböndin vilja sem stærsta sneið af kökunni og hvorugt er til í að gefa eftir. Fjármálaráðgjafi segir að HM sé ekki verðmæt söluvara ef evrópsku samböndin standa við hótun um að sniðganga mótið.

Share this article