Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Tæp 2.400 tonn eftir í pottinum

Read Full Article →

Í byrjun vikunnar hafði strandveiðiflotinn veitt tæp 10.900 tonn af þorski. Samkvæmt því standa enn eftir veiðar á tæpum 2.400 tonnum. Einnig gætu bæst við heimildir á tilboðsmarkaði Fiskistofu sem nú stendur yfir þar sem skipst er meðal annars á uppsjávartegundum og bolfiski. Meðaltal þorskafla á dag það sem af er júlí er 24 tonn en í allan maí var hann 264 tonn og 289 tonn í júní. tafla lss Það segir líka sína sögu um tíðarfarið að aðeins þrír bátar hafa nýtt alla þá tíu strandveiðidaga sem liðnir voru í júlí. Alls hafa 786 bátar landað afla á strandveiðum það sem af er tímabilinu, að því er fram kemur á smabatar.is.

Share this article