Saxast hefur vel á aflaheimildir strandveiðibáta. Upphaflegur pottur var um 10.700 tonn og við bættust 2.700 tonn með breytingu á lögum um stjórn fiskveiða í síðasta mánuði. Alls er því potturinn 13.400 tonn og þegar höfðu veiðst rúmlega 10.000 tonn í byrjun vikunnar. Ljóst er að þetta verður stærsta strandveiðivertíðin frá upphafi þessara veiða 2009. Ekki hafa margir bátar verið á sjó að undanförnu vegna lakra veðurskilyrða. Kjartan Páll Sveinsson, strandveiðimaður og formaður Landssambands smábátaeigenda, segir alveg útséð með að það náist 48 dagar til veiðanna, eins og fyrirheit stjórnvalda hafa staðið til. Að meðaltali hafa bátarnir verið að landa 280-290 tonnum á dag þannig að ætla má að það taki 10-12 daga að klára það sem eftir stendur af aflaheimildum. Strandveiðum ætti samkvæmt þessu að vera lokið í síðustu viku júlí en þær hófust 4. maí síðastliðinn. „Snuðaðir“ á skiptimarkaði Kjartan segir að það sem menn líti nú til sé skiptimarkaðurinn þar sem skipst er á kvóta í uppsjávartegundum sem fallið hafa í skaut strandveiðimanna fyrir bolfisk. „Við smábátasjómenn veiðum ekki mikið af loðnu eða síld og makríl. Þessar tegundir fara því inn á skiptimarkað. Þeir sem geta veitt þessar tegundir geta boðið þorsk á móti. En við höfum alla tíða komið mjög illa út úr þessu. Kjartan Páll Sveinsson, strandveiðimaður og formaður Landssambands smábátaeigenda. Miðað við þorskígildisstuðla höfum við verið snuðaðir um í kringum 3.000 tonn af þorski á skiptimarkaðnum. En í raun er það miklu meira því það er náttúrulega vitað að þorskígildisstuðlar fyrir uppsjávartegundir eru bara brandari. Þessar tegundir eru mun verðmætari en það sem stuðlarnir endurspegla. Við vitum líka að það fæst mun hærra verð fyrir uppsjávarfisk í Færeyjum en á Íslandi,“ segir Kjartan. Heimild til að hafna tilboðum Landssamband smábátasjómanna hefur af þessum sökum sent atvinnuvegaráðherra erindi þar sem farið er fram á reglugerðarbreytingu sem kveður á um að Fiskistofu verði ekki skylt að taka hæsta tilboði á skiptimarkaðnum og fái heimild til þess að hafna öllum tilboðum. Þessar tegundir verði einfaldlega boðnar upp aftur. „Það var að koma makríll inn á skiptimarkaðinn í dag [mánudag] og við erum dálítið spenntir að sjá hvað kemur út úr því,“ segir Kjartan. Auk þess hafa smábátasjómenn áhyggjur af stöðu línuívilnunar. Komi eitthvað út úr skiptimarkaðnum vill Landssambandið að einhver hluti þess renni til línuívilnunar sem hafi verið skorin niður alveg niður að beini. „Við eigum eftir að berjast fyrir línuívilnuninni til síðasta blóðdropa.“