Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Eyjólfur eykur strandveiðikvótann

Read Full Article →

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur aukið aflaheimildir til strandveiða á yfirstandandi strandveiðitímabili. Aflamark þorsks til strandveiða hækkar um 2.700 tonn á tímabilinu eða úr 10.650 tonnum í 13.350 tonn. „Með þessari aukningu nemur heildarafli sem úthlutað verður til strandveiða upp úr sjó 14.700 tonnum,“ segir í tilkynningu innviðaráðuneytisins. Eyjólfur undirritaði í gær breytingu á reglugerð um ráðstöfun afla sem dreginn er frá heildarafla (nr. 1270/2025). Ráðuneytið segir breytinguna gerða á grundvelli jöfnunarheimildar sem samþykkt var samkvæmt lögum nr. 46/2026, um breytingu á lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, sem heimilar ráðstöfun aukins aflamagns til strandveiða til viðbótar við áður úthlutað aflamagn á fiskveiðiárinu. „Það er ánægjuefni að strandveiðivertíðin í ár verði sú allra stærsta frá upphafi, þrátt fyrir samdrátt í heildarafla síðustu ár. Það er mikilvægt að efla strandveiðar, enda tryggja þær beint aðgengi að þjóðarauðlindinni, styðja við nýliðun í greininni og skapa mikil verðmæti,“ segir Eyjólfur . Strandveiðar og aðrar félagslegar ráðstafanir fiskveiðistjórnunarkerfisins voru fluttar frá atvinnuvegaráðuneytinu yfir til innviðaráðuneytisins í júlí 2025. Sjá einnig Strand­veiðar færðar til inn­viðaráðu­neytisins Breytingin var ákveðin sama dag og Fiskistofa tilkynnti um að strandveiðum væri lokið í fyrra. Strandveiðimenn lýsti yfir óánægju í ljósi loforða ríkisstjórnarinnar um að tryggja 48 daga til standveiða.

Share this article