„Það er ánægjuefni að strandveiðivertíðin í ár verði sú allra stærsta frá upphafi, þrátt fyrir samdrátt í heildarafla síðustu ár,“ segir Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra sem hefur aukið aflaheimildir til strandveiða á yfirstandandi strandveiðitímabili. Að því er er fram kemur á vef stjórnarráðsins gerði innviðaráðherra þetta í gær með því að undirrita breytingu á reglugerð um ráðstöfun afla sem dreginn er frá heildarafla (nr. 1270/2025). Hækkað um 2.700 tonn á tímabilinu „Með reglugerðinni er aflamark þorsks til strandveiða hækkað um 2.700 tonn á tímabilinu eða úr 10.650 tonnum í 13.350 tonn. Með þessari aukningu nemur heildarafli sem úthlutað verður til strandveiða upp úr sjó 14.700 tonnum,“ segir í tilkynningu . „Það er mikilvægt að efla strandveiðar, enda tryggja þær beint aðgengi að þjóðarauðlindinni, styðja við nýliðun í greininni og skapa mikil verðmæti,“ er haft eftir ráðherra. Á grundvelli jöfnunarheimildar Þá segir að breytingin sé gerð á grundvelli jöfnunarheimildar sem samþykkt hafi verið samkvæmt lögum nr. 46/2026, um breytingu á lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, sem heimili ráðstöfun aukins aflamagns til strandveiða til viðbótar við áður úthlutað aflamagn á fiskveiðiárinu. Skoða breytingu á reglugerð nr. 1270/2025, um ráðstöfun afla sem dreginn er frá heildarafla samkvæmt 5. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða