Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Strandveiðikvótinn aukinn um 2.700 tonn

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 26 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Sjávarútvegur Strand­veiði­kvót­inn aukinn um 2.700 tonn Brynjólfur Þór Guðmundsson Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra undirritaði í gær reglugerð sem eykur strandveiðikvótann úr 10.650 tonnum í 13.350 tonn. Strandveiðimenn mega því veiða 2.700 tonnum meira en áður hafði verið ákveðið. Strandveiðar hófust í byrjun maí og þóttu almennt fara vel af stað og veiddist meira í byrjun en á sama tíma í fyrra. Formaður Landssambands smábátaeigenda lýsti þá áhyggjum af því að ekki yrði hægt að veiða í 48 daga ef ekki kæmi til lagabreyting. RUV / Víðir Hólm Ólafsson Fyrir 40 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Inga ræddi við full­trúa TikTok um ald­urs­mörk fyrir not­end­ur Aldurstakmark fyrir notendur samfélagsmiðla var rætt á fundi mennta- og barnamálaráðherra með fulltrúum samfélagsmiðlarisans TikTok. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Ógnaði dóttur sam­býl­is­manns síns með pizzu­skera Brynjólfur Þór Guðmundsson Kona á sextugsaldri var í gær sakfelld fyrir líkamsárás og brot í nánu sambandi. Hún skapaði ógnarástand á heimili sínu síðasta sumar með því að beita dóttur sambýlismanns síns og vinkonu hennar andlegu og líkamlegu ofbeldi. Konan kastaði meðal annars síma og pizzukassa í dóttur sambýlismannsins, tók hana hálstaki og hrinti henni, ýtti eða sló til vinkonu stúlkunnar og elti þær þegar þær flýðu út. Hún mun hafa brotið rúðu í forstofuhurð og kastað stórum pizzuskera í átt að stúlkunum sem höfðu flúið út á bílaplan. Dómari við Héraðsdóm Norðurlands vestra dæmdi konuna til tveggja mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar. Héraðsdómur Norðurlands vestra. RÚV / Aðsent Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Golf Það reynd­ist pabb­an­um erfitt þegar bolt­inn týnd­ist Gunnlaugur Árni Sveinsson skráir sig á spjöld sögunnar um þessar mundir með þátttöku sinni á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi. Sveinn Kristinn Ögmundsson, pabbi Gunnlaugs, ræddi fyrstu fjórtán holurnar. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Golf Golf­vakt­in: Gunn­laug­ur klár­aði 18. holu á pari Gunnlaugur Árni Sveinsson klárar fyrsta hringinn á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi innan skamms. Gunnlaugur er aðeins annar íslenski karlinn til að keppa á risamóti í golfi og fyrsti til að keppa á Opna bandaríska. Haraldur Franklín Magnús keppti á Opna breska árið 2018. Gunnlaugur kláraði 14 holur í gær en það þurfti að fresta síðustu fjórum holunum í gær þar sem sólin var sest. Gunnlaugur er núna á +9 höggum eftir 14 holur. Gunnlaugur fer af stað í seinni hringinn um klukkan 12:40. Eftir þann hring kemur í ljós hvort hann komist í gegnum niðurskurðinn. FRÉTTAVAKT Fyrir 2 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Mannlíf „Ég á mér draum um að skemmta í öllum bæjum á Ís­landi“ Jakob Birgisson grínisti er á leið í ferðalag um landið. Hann kemur við á hinum ýmsu stöðum þar sem hann treður upp og grínast með allt milli himins og jarðar, meðal annars skilnaði. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Í dag: Banda­rík­in og Ástr­al­ía berj­ast um topp­sæt­ið Það er að sjálfsögðu þétt dagskrá á HM karla í fótbolta í dag. Önnur umferð riðlakeppninnar er hafin og heimamenn í Bandaríkjunum berjast við Ástrala toppsætið í D-riðli. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál 15% meiri neysla og 28 pró­sent meiri lands­fram­leiðsla Brynjólfur Þór Guðmundsson Verðbólga var 4,8 prósent á Íslandi síðustu tólf mánuði samkvæmt samræmdri vísitölu neysluverðs. Verðbólga á Evrópska efnahagssvæðinu var 3,3 prósent á sama tíma. Þetta kemur fram í tölum Hagstofunnar. Hún birti í dag samanburð á neyslu, landsframleiðslu og verðlagi í Evrópu. Þar kemur fram að landsframleiðsla á mann var 28% meiri á Íslandi en í Evrópusambandinu á síðasta ári. Einstaklingsbundin neysla var 15% meiri á Íslandi en í Evrópusambandinu að teknu tilliti til þess hversu mikið fæst fyrir sömu upphæð í ólíkum löndum. Matur og drykkur var að jafnaði 56% dýrara á Íslandi en í Evrópusambandinu. Matur og drykkur var 56 prósent dýrari á Íslandi en í ESB í fyrra. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Kólumbía Rann­saka tengsl fyrr­ver­andi for­seta við vopn­aða hópa Brynjólfur Þór Guðmundsson Saksóknaraembætti í Kólumbíu greindi frá því í gær að rannsókn væri hafin á tengslum Alvaro Uribe, fyrrverandi forseta, við vopnaða hópa í valdatíð hans. Uribe var forseti 2002 til 2010 og þar áður héraðsstjóri. Sveitir vinstri sinnaðra uppreisnarmanna, hægri sinnaðir vopnaðir hópar og herinn bárust á banaspjót áratugum saman og unnu ýmis óhæfuverk. Uribe hefur alltaf neitað tengslum við slíka hópa. Bróðir hans stýrði einum þeirra. Saksóknari ætlar að rannsaka hugsanlegan þátt Uribe í að stofna vopnaða hópa þegar hann var héraðsstjóri. Hann hefur líka verið sakaður um að tengjast fjöldamorðum slíkra sveita. Alvaro Uribe. EPA / Stringer Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Alþingi Lög um inn­viða­fé­lag sam­þykkt Þingstörfum lýkur í dag með afgreiðslu fjölda mála. Frumvarp um innviðafélag varð að lögum í gærkvöld með atkvæðum stjórnarliða og hjásetu stjórnarandstæðinga. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Evrópuglugginn Gagn­rýn­ir seina­gang EES-ríkj­anna og óbil­girni í samn­ing­um um makríl Ráðherraráð Evrópusambandsins er almennt jákvætt í garð Íslands og annarrra EES-ríkja en gagnrýnir seinagang við upptöku og aðlögun reglugerða og tilskipana. Ágreiningur um flökkustofna er einnig áberandi í umfjöllun ráðsins. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Noregur Norsk yf­ir­völd mót­mæla of­beld­is­fullri með­ferð á að­gerð­ar­sinn­um Brynja Dögg Friðriksdóttir 430 aðgerðarsinnar Global Sumud Flotilla voru handteknir af Ísraelsher í maí. Þeim var sleppt nokkrum dögum síðar. AP / Emrah Gurel Norsk yfirvöld hafa komið mótmælum á framfæri til ísraelskra stjórnvalda vegna ofbeldisfullrar meðferðar á aðgerðarsinnum. Þeir voru handteknir af Ísraelsher um borð í bátum sem voru á leið til Gaza með hjálpargögn í maí. Norska ríkisútvarpið greinir frá. Alls voru 430 aðgerðarsinnar handteknir, þar af fjórir Norðmenn, og fluttir til Ísraels. Þar voru þeir í varðhaldi í um viku þar sem þeir máttu margir hverjir sæta ofbeldi. Nokkrir aðgerðarsinnar þurftu að leggjast inn á sjúkrahús, þar á meðal Norðmenn. Að minnsta kosti 45 aðgerðarsinnar sögðust hafa verið beittir kynferðislegu ofbeldi. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Fjölþáttaógnir „Flóð­gátt­ir upp­lýs­inga­óreiðu standa gal­opn­ar og ógna lýð­ræð­inu“ Framboð hefðbundinna fréttamiðla á traustum fréttum sem byggjast á sannreyndum upplýsingum hefur sjaldan ef nokkru sinni verið eins mikilvægt og nú. Óreiða og falsfréttir flæða um samfélagsmiðla og hafa áhrif á skoðanir fólks og þar með lýðræðið. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Akureyrarbær Tvær lík­ams­árás­ir á Bíla­dög­um Brynjólfur Þór Guðmundsson Erill var á vaktinni á Akureyri hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra. Bíladagar standa yfir og setja mark sitt á bæinn. Talsverð ölvun var í bænum og eitthvað um pústra. Tvær líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglu en enginn virðist vera með alvarlega áverka. Fjórir gistu fangaklefa um tíma, bæði vegna líkamsárásanna og vegna ölvunar. Frá Akureyri. RÚV / Kristófer Óli Birkisson Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Skin og skúrir Nokkuð blautt verður norðan- og austan til í dag. Bjartara verður yfir suðvestan til en þar er þó útlit fyrir skúrir síðdegis. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Frest­ar fyr­ir­hug­aðri ferð til Sviss JD Vance varaforseti Bandaríkjanna hefur frestað fyrirhugaðri ferð sinni til Sviss, þar sem viðræður um næstu skref í samkomulagi milli Bandaríkjanna og Íran áttu að fara fram í dag. Óljóst er hvort Íranar sendi fulltrúa til Sviss. Fyrir 7 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Allt það helsta: Mexíkó - Suður - Kórea Mexíkó hafði betur í leiknum á móti Suður-Kóreu sem fram fór í nótt, 1-0. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bretland Burn­ham vann stór­sig­ur Borgarstjóri Manchester, Andy Burnham, vann stórsigur í aukakosningum sem fram fóru í Makersfield-kjördæmi á Englandi í gær. Burnham kemst því inn á breska þingið og er talinn mögulegur arftaki Keirs Starmers. Fyrir 8 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Mexíkó vann Suður-Kóreu 1-0 Mexíkó fór með sigur af hólmi á móti Suður-Kóreu, 1-0, í leik liðanna í A-riðli sem fram fór í nótt. Mexíkó leiðir A-riðil með tveimur sigrum. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Holland Ein­angr­un lokið fyrir flesta vegna hant­a­vír­us Nær allir farþegar og áhöfn á skemmtiferðaskipinu Hondiusi sem þurftu að vera í einangrun í Hollandi vegna hantavírusar hafa nú lokið einangrun og mega fara heim til sín. Enginn hefur látist úr veirunni síðan í byrjun maí. 19. júní 2026 kl. 1:16ÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Allt það helsta: Kanada - Katar Kanada vann 6-0 stórsigur gegn Katar í B-riðli HM karla í fótbolta. Katar menn fengu tvö rauð spjöld og Kona braut löpp sína illa. 19. júní 2026 kl. 0:57ÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Sá fyrsti í 60 ár til að setja þrennu á heima­velli Jonathan David framherji Kanada skoraði þrennu í dag gegn Katar í 6-0 sigri. Þetta hefur ekki gerst frá HM 1966. 19. júní 2026 kl. 0:53ÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Al­gjört partý hjá Kanada í met­sigri en þó leið­inda­at­vik Kanada fór afar illa með Katar og vann 6-0 sigur í B-riðli. Þetta var fyrsti sigur heimamannana í Kanada og slógu þeir met yfir flest mörk liðs frá Concacaf á HM. Meiðsli Ismael Kone settu þó svartan blett á partýið. 19. júní 2026 kl. 0:31ERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Zel­en­sky vill funda með Pútín fyrir vet­ur­inn Brynja Dögg Friðriksdóttir Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti. EPA / Robin van Lonkhuijsen Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti vill hitta Vladimir Pútín Rússlandsforseta við samningaborðið fyrir komandi vetur. Zelensky skrifaði þetta í færslu sem hann birti á Telegram og norska ríkisútvarpið greindi frá. Zelensky bætti við í færslu sinni að Úkraínumenn viti við hvern þeir séu að eiga, Pútín vilji stríð. Ef stríðið heldur áfram þurfa Úkraínumenn neyðarpakka fyrir veturinn. Þörf sé á aðstoð með eldsneyti, dísil, rafmagnsbúnað og fleiri flugskeyti. Ú

Share this article