Húsnæðis- og mannvirkjastofnun birti í júní nýtt fasteignamat fyrir árið 2027. Heildarmat fasteigna á landinu hækkar um 2,1% milli ára og nemur 17,8 billjónum króna. Fasteignamat íbúðareigna hækkar um 1,2%, en HMS bendir á að það jafngildi 3,8% lækkun að raunvirði þar sem matið hækkar minna en almennt verðlag. Á höfuðborgarsvæðinu hækkar fasteignamat íbúðareigna um 1,0% milli ára. Líkt og Viðskiptablaðið greindi frá í síðustu viku seldist þriðjungur fullbúinna íbúða í fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu undir fasteignamati á öðrum ársfjórðungi. Hlutfallið var 33,4%, samanborið við 30,6% á fyrsta fjórðungi, samkvæmt samantekt Viðskiptablaðsins úr kaupskrá Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Í júní einum fór hlutfallið enn hærra, eða í 36,2%. Svo hátt hlutfall íbúða undir fasteignamati hefur ekki sést frá árunum eftir bankahrunið. Sjá einnig Munurinn sérstaklega mikill í Reykjavík HMS segir hækkunina fyrir næsta ár einkum skýrast af sérbýli, en fasteignamat fjölbýlis á höfuðborgarsvæðinu stendur nánast í stað. Þróunin skiptir þó ekki aðeins máli fyrir kaupendur og seljendur. Fasteignagjöld sveitarfélaga eru lögð á fasteignamat, ekki það verð sem fæst þegar eign er seld. Þegar stór hluti íbúða selst undir mati getur álagning fasteignagjalda því byggst á verðmati sem eigendur fá ekki endilega staðfest á markaði ef þeir reyna að selja eignina. Með öðrum orðum getur skattstofninn hækkað eða haldist hár á sama tíma og raunverulegt söluvirði margra eigna er lægra en fasteignamatið gefur til kynna. Það er sérstaklega viðkvæmt í stöðu þar sem þriðjungur fullbúinna fjölbýlisíbúða á höfuðborgarsvæðinu selst undir fasteignamati. Þegar stór hluti íbúða selst undir mati getur álagning fasteignagjalda því byggst á verðmati sem eigendur fá ekki endilega staðfest á markaði ef þeir reyna að selja eignina. Með öðrum orðum getur skattstofninn hækkað eða haldist hár á sama tíma og raunverulegt söluvirði margra eigna er lægra en fasteignamatið gefur til kynna. Það er sérstaklega viðkvæmt í stöðu þar sem þriðjungur fullbúinna fjölbýlisíbúða á höfuðborgarsvæðinu selst undir fasteignamati. Sjá einnig Fasteignamatið úr takti við markaðinn