Innlent | mbl | 2.6.2026 | 11:00 Fasteignamat íbúða hækkar um 1,2% Fasteignamat íbúða lækkar að raunvirði á milli ára. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Tengdar fréttir Húsnæðismarkaðurinn Góð birtuskilyrði lykilþáttur Leggja línurnar um lágmarksbirtu í nýbyggingum Niðurrif og uppbygging í Vogabyggð Lét teikna hagkvæmari íbúðir Alvarleg staða á íbúðamarkaði » Fleiri tengdar fréttir Heildarmat fasteigna fyrir árið 2027 nemur 17.800 milljörðum króna og hækkar um 2,1 prósent á milli ára. Fasteignamat íbúðareigna hækkar um 1,2 prósent á milli ára, en fasteignamat atvinnueigna hækkar um 4,8 prósent. Fasteignamat sumarhúsa hækkar um 4,7 prósent á milli ára. Hækkun á fasteignamati íbúða er mun minni en á sama tíma í fyrra þegar meðalfasteignamatið hækkaði um 10,2%. Frétt af mbl.is Fasteignamat íbúða hækkar um 10,2% Fasteignamat íbúða lækkar að raunvirði á milli ára, eða um 3,8%, þar sem það hækkar minna en almennt verðlag, að því er segir í tilkynningu HMS. Stofnunin hefur áður fjallað um kólnun á fasteignamarkaði á síðustu misserum, en samhliða henni hefur fasteignaverð ekki haldið í við verðbólgu. Mesta hækkunin á Vestfjörðum Ef litið er til breytinga fasteignamats íbúðareigna eftir landshlutum er hækkunin mest á Vestfjörðum, þar sem hún nemur 4,6 prósentum á milli ára. Á höfuðborgarsvæðinu nemur hækkunin einu prósenti á milli ára. Þar er hækkunin drifin áfram af sérbýlum, en fasteignamat fjölbýla á höfuðborgarsvæðinu stendur nánast í stað á milli ára. Ísafjörður. mbl.is/Sigurður Bogi Fasteignamat atvinnueigna hækkar um 4,8 prósent á milli ára. Hækkunin er nokkuð meiri en hjá íbúðareignum, en þó minni en almennt verðlag á sama tíma. Fasteignamat á iðnaðarhúsnæði hækkar mest, en hækkunin þar nemur 5,5 prósentum á milli ára. Hækkunin hjá öðrum flokkum atvinnueigna á milli ára er nær 4 prósentum. „HMS greindi frá því á síðasta ári að matsaðferðir fyrir atvinnueignir séu til endurskoðunar. HMS hefur þróað drög að nýjum matsaðferðum í samráði við hagaðila og stefnir á að kynna þau síðar á þessu ári,” segir í tilkynningunni. Nær því að halda í við verðbólgu Fasteignamat sumarhúsa hækkar um 4,7 prósent á milli ára og hækkar því með álíka hætti og fasteignamat atvinnueigna. Bæði sumarhús og atvinnueignir eru nær því að halda í við verðbólgu heldur en fasteignamat íbúðarhúsnæðis. Fasteignamat sumarhúsa hefur hækkað töluvert á síðustu árum vegna mikillar verðhækkunar á seldum sumarhúsum. Gera má ráð fyrir því að verðhækkunin sé vegna mikillar aukningar á eftirspurn miðað við framboð. Vegna óvissu um framtíðarhorfur og nýtingu eigna í Grindavík liggur fyrir ákvörðun ríkisstjórnar um að leggja fyrir Alþingi frumvarp um að halda fasteignamati í Grindavík óbreyttu á milli ára. HMS mun birta nýtt mat á fasteignum í sveitarfélaginu þegar niðurstaða þingsins liggur fyrir. Beint streymi frá kynningarfundi HMS: Tengdar fréttir Húsnæðismarkaðurinn Góð birtuskilyrði lykilþáttur Leggja línurnar um lágmarksbirtu í nýbyggingum Niðurrif og uppbygging í Vogabyggð Lét teikna hagkvæmari íbúðir Alvarleg staða á íbúðamarkaði » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Öflugur stormur veldur usla í Japan Heitasta parið núna snæddi saman í Tókýó „Þá er bara hægt að pakka saman og hætta þessu“ Búinn að semja við Liverpool Falsaðar Apple-vörur flæða yfir Svíþjóð Umræðan Af hverju er ESB svona vinsælt? Staðreyndir um stöðuna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Rúmlega 1.100 skjálftar: Dregið hefur úr virkninni Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Gervigreindin eyðileggur fyrir lestri Njálu „Þarna stóð ég og gat ekki annað“ Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Margrét Jónsdóttir Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Mennirnir ekki tengdir fjölskylduböndum „Reta er bara Ozempic á sterum“ Segir lyfin geta dregið fólk til dauða Vilja grafa upp bein Jónasar Hallgrímssonar Tveir skólar sameinast í haust Markaðsvirði Oculis hrynur Skýrt umboð til breytinga „Það eru ansi margar spurningar sem vakna“ Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Braut gegn stúlku sem lá á bráðamóttöku Mótmælendur öskruðu og blístruðu á þingheim Flugi Icelandair aflýst vegna mönnunarvanda Jafnlaunavottun lögð niður Kort: Hrinan á svæði þar sem líkur eru á gosupptökum „Ætlaði aldrei að eignast nýja vini“ Útskýring fengin á lágfluginu Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Nýjast á mbl.is » Öflugur stormur veldur usla í Japan Heitasta parið núna snæddi saman í Tókýó „Þá er bara hægt að pakka saman og hætta þessu“ Búinn að semja við Liverpool Falsaðar Apple-vörur flæða yfir Svíþjóð Umræðan Af hverju er ESB svona vinsælt? Staðreyndir um stöðuna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Orðskýringarnar orðnar óskiljanlegar Svæðið á inni fyrir öðrum stórum skjálfta Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Skjálftinn fannst víða Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Margrét Jónsdóttir Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Mennirnir ekki tengdir fjölskylduböndum „Reta er bara Ozempic á sterum“ Segir lyfin geta dregið fólk til dauða Vilja grafa upp bein Jónasar Hallgrímssonar Tveir skólar sameinast í haust Markaðsvirði Oculis hrynur Skýrt umboð til breytinga „Það eru ansi margar spurningar sem vakna“ Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Braut gegn stúlku sem lá á bráðamóttöku Mótmælendur öskruðu og blístruðu á þingheim Flugi Icelandair aflýst vegna mönnunarvanda Jafnlaunavottun lögð niður Kort: Hrinan á svæði þar sem líkur eru á gosupptökum „Ætlaði aldrei að eignast nýja vini“ Útskýring fengin á lágfluginu Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað