Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Fast­eigna­mat lækkar að raun­virði

Read Full Article →

Fast­eigna­mat á Ís­landi lækkar að raun­virði á milli ára sam­kvæmt nýju fast­eigna­mati Húsnæðis- og mann­virkja­stofnunar fyrir árið 2027. Heildar­mat fast­eigna nemur 17,8 billjónum króna og hækkar um 2,1% í krónum talið. Hækkunin er hins vegar tölu­vert minni en verðbólga og fast­eigna­mat lækkar því að raun­virði. Þetta kemur fram í ný­birtu fast­eigna­mati HMS. Endur­speglar kólnun síðustu misseri Raun­lækkunin er skýrust á íbúða­markaði. Fast­eigna­mat íbúðar­eigna hækkar aðeins um 1,2% á milli ára og nemur sam­tals 13,0 billjónum króna. Að raun­virði lækkar fast­eigna­mat íbúðar­húsnæðis um 3,8%. Þetta þýðir að þótt matið hækki lítil­lega í krónum talið hefur fast­eigna­verð sam­kvæmt matinu ekki haldið í við al­mennt verðlag. HMS segir minni verðþrýsting á fast­eigna­markaði skýra að fast­eigna­matið hækki mun minna en það hefur gert undan­farin ár. Fast­eigna­mat á að endur­spegla áætlað markaðsvirði fast­eigna í febrúar árið áður. Fast­eigna­mat ársins 2027 miðast því við markaðsvirði fast­eigna í febrúar 2026 sam­kvæmt mat­sað­ferðum HMS. Þróunin endur­speglar kólnun á fast­eigna­markaði síðustu misseri. Eftir miklar hækkanir síðustu ára hefur dregið úr verðþrýstingi og fast­eigna­verð hefur ekki haldið í við verðbólgu. Munur er þó á þróun eftir tegundum eigna. Fast­eigna­mat íbúðar­eigna hækkar um 1,2%, at­vinnu­eigna um 4,8% og sumar­húsa um 4,7%. At­vinnu­eignir og sumar­hús halda því betur í við verðlag en íbúðar­húsnæði, þótt hækkun þeirra sé einnig minni en al­menn verðbólga. Fast­eigna­mat íbúða hækkar mest á Vest­fjörðum, eða um 4,6% á milli ára. Á höfuð­borgar­svæðinu er hækkunin aðeins 1,0%. Þar er hún fyrst og fremst drifin áfram af sér­býli, en fast­eigna­mat fjöl­býlis stendur nánast í stað milli ára. Þegar litið er til íbúða­eigna eftir flokkum hækkar mat á fjöl­býli aðeins um 0,9%. Mat á ein­býlis­húsum hækkar um 1,6%, raðhúsum um 1,5%, par­húsum um 1,3% og tvíbýli um 0,8%. Þetta skiptir máli fyrir stóran hluta heimila, enda eru fjöl­býli langstærsti flokkur íbúða­eigna. Alls eru 86.703 fjöl­býlis­eignir í matinu, saman­borið við 35.604 ein­býlis­hús. Á höfuð­borgar­svæðinu er hækkunin víða hóf­leg. Í Reykja­vík hækkar fast­eigna­mat íbúðar­eigna um 0,5% og heildar­mat allra eigna í borginni um 1,2%. Í Kópa­vogi hækkar íbúða­mat um 1,0%, í Hafnarfirði um 1,3%, á Sel­tjarnar­nesi um 1,5% og í Garða­bæ um 1,4%. Mos­fells­bær sker sig nokkuð úr á höfuð­borgar­svæðinu, þar sem fast­eigna­mat íbúðar­eigna hækkar um 3,8% og heildar­mat fast­eigna um 3,6%. Mest hækkun á heildar­mati sveitarfélaga er í Bolungar­vík, þar sem fast­eigna­mat hækkar um 10,2%. Þar hækkar íbúða­mat um 11,1%. Þá hækkar heildar­mat um 9,7% í Tjör­nes­hreppi, 8,6% í Sval­barðs­strandar­hreppi og 7,5% í Þin­g­eyjar­sveit. Lægst er hækkunin í Grinda­vík, þar sem fast­eigna­mat er birt óbreytt að svo stöddu vegna óvissu um framtíðar­horfur og nýtingu eigna í bænum. Ríkis­stjórnin hefur ákveðið að leggja fyrir Alþingi frum­varp um að halda fast­eigna­mati í Grinda­vík óbreyttu milli ára. Þegar niður­staða Alþingis liggur fyrir mun HMS birta nýtt mat á fast­eignum í sveitarfélaginu. Meðal annarra sveitarfélaga þar sem heildar­mat hækkar lítið má nefna Flóa­hrepp, þar sem hækkunin er 0,4%, Ár­borg og Vopna­fjarðar­hrepp, þar sem hækkunin er 0,7%, og Reykja­vík, þar sem hún er 1,2%. At­vinnu­eignir hækka meira en íbúðar­húsnæði Fast­eigna­mat at­vinnu­eigna hækkar um 4,8% á landinu öllu og nemur 2,6 billjónum króna. Þar hækkar mat á iðnaðar­húsnæði mest, eða um 5,5%. Mat á verslunar­húsnæði hækkar um 4,4%, skrif­stofu­húsnæði um 4,7%, geymslum um 4,2% og hótelum og gisti­heimilum um 4,1%. HMS bendir á að fast­eigna­mat at­vinnu­eigna hafi sveiflast minna en fast­eigna­mat íbúðar­eigna síðustu ár. Stofnunin greindi frá því í fyrra að mat­sað­ferðir fyrir at­vinnu­eignir væru til endur­skoðunar. Drög að nýjum mat­sað­ferðum hafa verið þróuð í samráði við hagaðila og verða kynnt síðar á árinu. Fast­eigna­mat sumar­húsa hækkar um 4,7% á milli ára og nemur 554 milljörðum króna. HMS segir eftir­spurn eftir sumar­húsum halda uppi matinu. Fast­eigna­mat sumar­húsa hefur hækkað mikið undan­farin ár vegna verðhækkana á seldum sumar­húsum, sem stofnunin segir lík­lega skýrast af mikilli eftir­spurn miðað við fram­boð. Nýja fast­eigna­matið hefur áhrif víða Það er meðal annars notað sem grunnur við álagningu fast­eigna­skatta sveitarfélaga, þótt skatt­pró­sentur og af­slættir séu ákveðnir af hverju sveitarfélagi. Endan­leg áhrif á eig­endur ráðast því af ákvörðunum sveitarfélaga um álagningu. HMS birtir fast­eigna­mat ár­lega um mitt ár. Hægt er að fletta upp fast­eigna­mati ein­stakra fast­eigna á vef stofnunarinnar. Fast­eigna­mats­skýrsla fyrir árið 2027 verður birt í haust.

Share this article