Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Fast­eigna­matið úr takti við markaðinn

Read Full Article →

riðjungur full­búinna íbúða í fjöl­býli á höfuð­borgar­svæðinu seldist undir fast­eigna­mati á öðrum árs­fjórðungi. Hlut­fallið var 33,4%, saman­borið við 30,6% á fyrsta fjórðungi, sam­kvæmt saman­tekt Við­skipta­blaðsins úr kaupskrá Húsnæðis- og mann­virkja­stofnunar. Í júní einum fór hlut­fallið enn hærra, eða í 36,2%. Svo hátt hlut­fall íbúða undir fast­eigna­mati hefur ekki sést frá árunum eftir banka­hrunið. Saman­tektin nær til þinglýstra kaup­samninga um full­búið íbúðar­húsnæði í Reykja­vík, Kópa­vogi, Hafnarfirði, Garða­bæ, Mos­fells­bæ og á Sel­tjarnar­nesi frá janúar til júní­loka. Bornir eru saman kaup­samningar og fast­eigna­mat sem gilti á samnings­degi. Samningar um íbúðir sem enn voru í byggingu eru teknir út, enda er fast­eigna­mat slíkra eigna oft veru­lega lægra á kaup­samnings­degi en það verður þegar þær eru full­búnar. Tölurnar sýna skýran viðsnúning. Í upp­sveiflunni á fast­eigna­markaði var al­gengt að íbúðir seldust langt yfir fast­eigna­mati. Árið 2022 seldust aðeins 2,2% full­búinna fjöl­býlisíbúða á höfuð­borgar­svæðinu undir fast­eigna­mati. Í fyrra var hlut­fallið 10,3%, en á fyrri helmingi þessa árs er það komið yfir 30%. Dæmi­gerð full­búin fjöl­býlisíbúð á höfuð­borgar­svæðinu seldist þó enn yfir fast­eigna­mati á fyrri hluta ársins. Mið­gildi kaup­verðs var um 3% yfir mati. Munurinn hefur hins vegar minnkað hratt. Á öðrum fjórðungi var mið­gildi munarins um tvær milljónir króna og í júní var það komið niður í 1,6 milljónir króna. Til saman­burðar var dæmi­gert kaup­verð fjöl­býlisíbúðar 36% yfir fast­eigna­mati árið 2022 og mið­gildi munarins rúmar 16 milljónir króna. Áskrifendur geta lesið ítarlega samantekt Viðskiptablaðsins hér.

Share this article