Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Kynna sér­stakan drykk í til­efni af 100 ára af­mæli 66°Norður

Read Full Article →

Nýtt bragð af Collab hefur verið kynnt til leiks í samstarfi við íslenska útivistamerkið 66°Norður sem fagnar 100 árum í ár. „Það var virkilega gaman að vinna með 66°Norður að þessu verkefni. Teymið þeirra lagði mikinn metnað í að þróa bragð sem vekur upp minningar um íslenskt sumar og skapaði einstakan heim í kringum dósina,“ segir Vaka Njálsdóttir , vörumerkjastóri óáfengra drykkja hjá Ölgerðinni. „Útkoman er drykkur sem fangar bragðið af íslensku sumri og passar fullkomlega með ferðalögum um landið, útivist og útilegum – óháð því hvernig veðrið lætur.“ Collab og 66°Norður segja skírskotun drykkjarins vera íslenska sumarið og nostalgían sem því fylgir. Bragðið sé eitthvað sem landsmenn geta tengt við uppskeru seinni parts sumars en í drykknum má nefnilega finna keim af rabbabara, rifsberjum og sólberjum. „Það má því segja að hér sé íslenskt sumar aðgengilegt í dós, algjörlega óháð veðri.“ Drykkurinn kemur í takmörkuðu upplagi og miðar tímasetning við ferðalög um landið, útilegur og útivist næstu vikna í aðdraganda verslunarmannahelgar. „Okkur langaði að tengja við íslenska sumarið og nostalgíuna sem því fylgir og við unnum strax út frá því að brögðin þyrfti að vera hægt að finna í íslenskum garði, en bragðið endaði einmitt á að vera rabarbari, rifsber og sólber,“ segir Fannar Páll Aðalsteinsson , markaðsstjóri 66 Norður. „Tengingin við sjóinn er líka skemmtileg, en fyrir akkúrat 100 árum var 66°Norður stofnað í kringum framleiðslu sjófatnaðar, sem við framleiðum enn í dag, og Collab nýtir síðan auðvitað kollagen úr fiski í drykkinn."

Share this article