66°Norður hefur kynnt nýja vörulínu í tilefni af 100 ára afmæli fyrirtækisins þar sem innblásturinn kemur úr netagerð og íslenskum sjávarútvegi. Í línunni eru meðal annars útivistar- og sundfatnaður, taska, belti og lyklakippa. Taskan er gerð með ytra lagi úr notuðu ofurneti frá Hampiðjunni. „Að baki verkefninu liggur um árslangt samstarf 66° Norður og Hampiðjunnar. Starfsfólk Hampiðjunnar tók virkan þátt í verkefninu frá upphafi en markmiðið var að finna net sem hentaði bæði tæknilega og sjónrænt fyrir hönnun vörunnar. Á því tímabili voru fjölmargar gerðir neta skoðaðar og prófaðar þar sem metnir voru þættir á borð við hráefni, þykkt, möskvastærð, lit og hvort netið væri með íburðarefni eða ekki. Taska gerð úr endurnýttu neti. Í leitinni að rétta efninu voru hönnuðir 66°Norður meðal annars í sambandi við Hampidjan Baltic í Litháen til að skoða hvaða möguleikar væru þar fyrir hendi. Einnig voru myndir fyrir vörulínuna teknar á netaverkstæði Hampiðjunnar í Skarfagörðum. Á endanum var valið notað ofurnet sem heldur einkennum sínum úr sjávarútveginum en fellur um leið vel að hönnun og notkun vörunnar,“ segir í frétt frá Hampiðjunni. Þar segir einnig að samstarfið tengi saman tvö íslensk fyrirtæki sem eiga langa sögu í þjónustu við sjávarútveg. 66°Norður var stofnað árið 1926 sem Sjóklæðagerð Íslands og framleiddi hlífðarfatnað fyrir íslenska sjómenn. Hampiðjan var stofnuð árið 1934 og hefur í rúma níu áratugi þróað og framleitt net, veiðarfæri og tengdar lausnir fyrir sjávarútveg. Myndir fyrir vörulínuna teknar á netaverkstæði Hampiðjunnar í Skarfagörðum. „Þótt fyrirtækin hafi þróast í ólíkar áttir eiga þau sameiginlegan uppruna. Bæði urðu til til að mæta þörfum þeirra sem störfuðu á sjó og hafa byggt upp þekkingu og vörur sem standast krefjandi aðstæður. Í þessari afmælislínu eru endurnýtt net frá Hampiðjunni sem fá nýtt hlutverk og verða hluti af hönnun sem sækir innblástur í sögu íslensks sjávarútvegs.“