66°Norður opnaði í dag nýja verslun á Store Regnegade, þar sem verslunin Storm var áður til húsa, en Storm hefur skapað sér sess sem ein helsta tísku- og lífsstílsverslun Kaupmannahafnar síðustu áratugi. Í tilkynningu segir að nýja verslunin sé alls 160 fermetrar að stærð og sé sömuleiðis á tveimur hæðum. Nýja verslunin í Store Regnegade er þriðja verslun 66°Norður í Kaupmannahöfn en íslenska útivistarmerkið er fyrir með verslanir í Fredriksberg og á Kastrup-flugvelli. Sjá einnig 66°Norður bætir við verslun í Kaupmannahöfn „Þegar Rasmus Storm, eigandi Storm, ákvað að láta staðar numið með verslunina eftir 32 ár í rekstri vildi hann finna réttan aðila sem gæti haldið uppi merkjum þessa skemmtilega verslunarhúsnæðis. Samtal hófst á milli okkar og úr varð að 66°Norður tók við húsnæðinu en það varð líka til gott vinasamband á milli okkar og unnin var lítil samstarfslína sem seld verður í versluninni sem Rasmus hannaði á Íslandi með hönnunarteyminu okkar,“ segir Helgi Rúnar Óskarsson, forstjóri 66°Norður. Verslunin sækir innblástur til Íslands en þar má t.d. finna vegg úr hraunhellum, íslenskt berg sem og mátunarklefarnir á neðri hæðinni eru bein skírskotun í jökla og jöklahella. Verslunarrýmið er málað með málningu frá íslenska fyrirtækinu Dýpi sem vinnur málningu úr kalkþörungum úr Arnarfirði á Vestfjörðum.