Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Ívið meiri makríll en í fyrra og mikil útbreiðsla kolmunna

Read Full Article →

Þéttleiki makríls í íslenskri lögsögu er ívið meiri en í fyrra en þó minni en árin þar á undan. Þetta kemur fram í bráðabirgðaniðurstöðum Hafrannsóknarstofnunar . Rannsóknarskipið Árni Friðriksson lauk þátttöku sinni í árlegum alþjóðlegum uppsjávarleiðangri að sumarlagi í Norðurhöfum 30. júlí. Megintilgangur hans var að rannsaka útbreiðslu og þéttleika makríls, síldar og kolmunna. Makríll mældist á 21 af 34 yfirborðstogstöðvum, sem allar voru staðsettar austan við landið eða sunnan við Jan Mayen. Makrílseiði fengust á einni yfirborðstogstöð fyrir sunnan landið. Þéttleiki kolmunna reyndist ágætur. Kolmunni fékkst á ellefu yfirborðstogum fyrir austan og sunnan landið, sem stofnunin segir vera óvenjulegt og bendi til mikillar útbreiðslu kolmunna við landið. Líkt og undanfarin ár var norsk-íslenska vorgotssíldin fyrir norðan og austan landið. Bráðabirgðaniðurstöðurnar benda einnig til þess að hitastig í yfirborðslagi sjávar fyrir norðan land hafi verið hærra en sumarið 2025, sérstaklega sunnan við Jan Mayen. Það gæti skýrt hvers vegna mun meira magn síldar og makríls mældist á svæðinu en árið 2025. Fyrir austan, sunnan og vestan landið var yfirborðslagið aftur á móti lítillega kaldara en í leiðangrinum 2025.

Share this article