- What: Stock price of SpaceX drops amid market fluctuations
- Impact: Investors and stakeholders affected by stock value changes
Gengi hlutabréfa SpaceX fór niður fyrir útboðsgengið, 135 dali á hlut, í gær. Meira en 1.000 milljarðar dala af markaðsvirði félagsins hafa nú þurrkast út frá því að það náði hæstu hæðum skömmu eftir frumútboðið í síðasta mánuði. Gengi SpaceX fór í 225 dali á hlut um miðjan júní sem gerði félagið að fimmta verðmætasta fyrirtæki heims um tíma, verðmætara en Amazon. Síðan þá hafa bréfin lækkað um 40%. Virði 42% hlutar Musks í félaginu hefur á sama tíma lækkað úr 1.200 milljörðum dala í um 760 milljarða dala. Hlutabréfaverðið tók þó aðeins við sér í gær og stóð rétt yfir 135 dölum við lokun markaða. Sjá einnig SpaceX tekur fram úr Amazon SpaceX sótti einnig um 25 milljarða dala í skuldabréfaútgáfu fyrir þremur vikum. Skuldabréfin hafa hins vegar reynst meðal verstu fjárfestingarkosta á markaði með skuldabréf í háklassa (e. high-grade bond market) þar sem skuldabréfin hafa lækkað í verði vegna hærri ávöxtunarkröfu fjárfesta. Skuldabréfin með gjalddaga árið 2056 voru seld með 175 punkta álagi ofan á sambærileg bandarísk ríkisskuldabréf. Álagið stóð hins vegar í 231 punkti í gær sem þýðir að ávöxtunarkrafan hefur aukist um tæp 0,5%. Samkvæmt greiningu Financial Times hefði því 100 milljóna dala úthlutun í skuldabréfunum lækkað í um 90,7 milljónir dala á innan við mánuði. Lækkun gengis SpaceX kemur í kjölfar dræms gengis hátt verðlagðra tæknifyrirtækja síðasta mánuðinn. Fjárfestar eru sagðir hafa áhyggjur af hærri vöxtum í Bandaríkjunum og arðsemi fjárfestinga stórra tæknifyrirtækja í gervigreind. Goldman Sachs, einn umsjónaraðila útboðsins, spáir þó að tekjur SpaceX af gervigreind aukist hundraðfalt fyrir 2030.