Verðlagning á skuggamörkuðum benda til þess að hlutabréfaverð geimfyrirtækisins SpaceX gæti hækkað um meira en 35% í fyrstu viðsktipum í dag, eftir að 75 milljarað dala frumútboði félagsins lauk í gær, samkvæmt frétt Bloomberg . Afleiður hjá IG International, verðbréfamiðlara á netinu, benda til þess að markaðsvirði SpaceX gæti farið upp í ríflega 2.400 milljarða dala í dag, eða sem samsvarar rúmlega 35% hækkun frá 135 dala útboðsgenginu. Til samanburðar var félagið metið á 1.770 milljarða dala í útboðinu sem lauk í gær. Á rafmyntamarkaðnum Hyperliquid fór verð á ótímabundnum framvirkum samningum (e. perpetual futures) tengdir SpaceX upp í 180 dali, sem gefur til kynna að geimfyrirtækið sé metið á yfir 2.300 milljarða dala. Viðskipti með þessa samninga námu yfir 143 milljónum dala síðasta sólarhringinn og opnar stöður nema yfir 208 milljónum dala. Spámarkaðurinn Polymarket gaf einnig til kynna bjartsýni. Þar töldu fjárfestar um 70% líkur á að markaðsvirði SpaceX yrði yfir 2.000 milljörðum dala í lok fyrsta viðskiptadags. Sérfræðingar vara þó við að skuggamarkaðir séu mun minna gagnsæir en hefðbundnir hlutabréfamarkaðir. Verð þar getur því sveiflast verulega og endurspeglar ekki endilega almennt viðhorf fjárfesta. Þrátt fyrir það undirstrikar verðlagningin hversu mikill áhugi er á fyrirtækjum sem tengjast bæði gervigreind og geiminnviðum. Ef skráning SpaceX á markað tekst vel gæti hún styrkt horfur fyrir væntanleg hlutafjárútboð stórra tæknifyrirtækja á borð við OpenAI og Anthropic, og sýnt að svigrúm sé fyrir skráningu fyrirtækja með hærra virðismat en áður hefur þekkst. Sjá einnig Safna 75 milljörðum dala í stærsta hlutafjárútboði sögunnar