Opnað var fyrir viðskipti með hlutabréf geimfyrirtækisins SpaceX rétt fyrir kl. 16 á íslenskum tíma í dag. Hlutabréfaverð fyrirtækisins stendur í ríflega 165 dölum á hlut þegar fréttin er skrifuð. Geimfyrirtækið SpaceX lauk í gær 75 milljarða dala hlutafjárútboði, stærsta frumútboði sögunnar, í aðdraganda skráningar á Nadaq hlutabréfamarkaðinn í Bandaríkjunum. Útboðsgengið nam 135 dölum á hlut. Sjá einnig Beðið eftir fyrstu viðskiptum með bréf SpaceX Hluatbréfaverð SpaceX hefur því hækkað um meira en 20% í fyrstu viðskiptum á Nasdaq-markaðnum í Bandaríkjunum. Markaðsvirði félagsins nemur ríflega 2,1 þúsund milljörðum dala og er því orðið sjöunda stærsta fyrirtæki heims sé litið til markaðsvirðis. Einungis Nvidia, Alphabet (Google), Apple, Microsoft, Amazon og TSMC eru metin verðmætari á markaði. Auðæfi Elon Musk, stofnandi SpaceX, eru nú metin á 981 milljarð dala samkvæmt auðmannalista Forbes. Hækki gengi SpaceX frekar gæti hann orðið fyrsti einstaklingurinn í heimi til að vera metinn á yfir 1.000 milljarða dala.