SpaceX, geim-, gervihnatta- og gervigreindarfélag Elon Musk, hefur safnað 75 milljörðum dala í hlutafjárútboði sem er sagt það stærsta í sögunni. Hlutabréf félagsins voru verðlögð á 135 dali á hlut og er gert ráð fyrir að viðskipti með bréfin hefjist á Nasdaq í dag. Samkvæmt Financial Times seldi SpaceX 555,6 milljónir hluta í útboðinu. Heildarfjárhæðin gæti hækkað í 86 milljarða dala nýti sölutryggjendur heimild til að selja viðbótarhluti, svokallaðan greenshoe-rétt. Slík heimild er algeng í stórum hlutafjárútboðum og gerir sölutryggjendum kleift að kaupa eða selja fleiri hluti en upphaflega var gert ráð fyrir, yfirleitt til að mæta mikilli eftirspurn og styðja við stöðugleika í viðskiptum með bréfin eftir skráningu. Nýti þeir heimildina að fullu yrði SpaceX metið á um 1,78 billjónir dala. Fjármununum verður meðal annars varið í gervigreindarinnviði, ný gervihnattakerfi og endurfjármögnun skulda. Samkvæmt FT þarf um 20 milljarða dala hluti af útboðsfénu að fara í að greiða niður brúarlán sem félagið tók í mars, eftir að Musk sameinaði skuldsett gervigreindar- og samfélagsmiðlafyrirtæki sín við SpaceX. Musk sagði á kynningarfundi með fjárfestum í síðustu viku að félagið væri að hefja „gríðarlegt nýtt vaxtarskeið“ sem kallaði á aukið fjármagn. Hann hefur einnig kynnt hugmyndir um gagnaver í geimnum, sem hann telur geta leyst orkutakmarkanir á jörðu. Verðmatið er þó hátt í sögulegu samhengi. Samkvæmt FT er SpaceX taprekið og er verðmatið um 92 sinnum tekjur félagsins síðustu tólf mánuði, sem námu 19 milljörðum dala. Greinendur Goldman Sachs, sem er meðal aðalumsjónaraðila útboðsins, spá því að gervigreindartekjur SpaceX geti hundraðfaldast og numið 322 milljörðum dala árið 2030. Með skráningunni verður SpaceX eitt verðmætasta skráða félag Bandaríkjanna. Nasdaq hefur jafnframt samþykkt reglur sem gera félaginu kleift að komast inn í Nasdaq 100-vísitöluna eftir 15 viðskiptadaga. FTSE Russell hefur gengið enn lengra og heimilað hraðari innkomu í Russell 1000 og Russell 3000 vísitölurnar eftir fimm viðskiptadaga. Sjá einnig Söguleg eftirspurn í SpaceX