Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

SpaceX gefur upp út­boðsverðið

Read Full Article →

SpaceX, geimfyrirtæki Elon Musk, upplýsti í gærkvöldi um að það hyggist selja 555.555.555 hluti í félaginu á 135 dali á hlut í fyrirhuguðu frumútboði félagsins í næstu viku og sækja þannig 75 milljarða dala. Gangi það eftir yrði þetta stærsta frumútboð í sögunni. Ákvörðun fyrirtækisins um að gefa upp áformað útboðsverð meira en viku fyrir skráningu er sögð óvenjuleg í umfjöllun WSJ . Venjulega gefa fyrirtæki upp ákveðið verðbil og aðlaga það eftir fundarhöld með fjárfestum. SpaceX horfði með þessu til þess að draga úr óvissu í útboðsferlinu, samkvæmt heimildarmönnum WSJ. Fyrirtækið telji að eftirspurn verði nægilega mikil að fjárfestar muni sækjast eftir öllum þeim hlutum sem boðnir verða til sölu. Tekið er þó fram að SpaceX gæti aðlagað útboðsverðið í aðdraganda útboðsins. SpaceX stefnir á að vera metið á 1,75 þúsund milljarða dala í útboðinu. Það hefði í för með sér að virði fyrirtækisins myndi tvöfaldast á aðeins hálfu ári. Jafnframt myndi SpaceX taka fram úr Meta, Berkshire Hathaway og Tesla á mælikvarða markaðsvirðis. Gert er ráð fyrir að hlutabréf SpaceX verði tekin til viðskipta á hlutabréfamarkaði Nasdaq 12. júní næstkomandi. SpaceX var með tekjur upp á 18,7 milljarða dala á árinu 2025 en þar inni eru einnig tekjur gervigreindarfyrirtækisins xAI. Það þýðir að fyrirtækið er verðmetið á 93,6-falt meira en sölutekjur fyrirtækisins. Til samanburðar er sami margfaldari hjá S&P500 3,38. SpaceX tapaði 4,9 milljörðum dala á árinu 2025. Ein stærsta tekjulind SpaceX er Starlink en það er net gervihnatta, sem veitir háðraðanettengingu víða um heim. SpaceX hefur einnig verulegar tekjur af samningum við bandarísk stjórnvöld sem tengjast geimferðum.

Share this article