Kaupbeiðnir almennra fjárfesta á hlutabréfum í frumútboði SpaceX nema yfir 70 milljörðum dala, að því er kemur fram í frétt frá Bloomberg . Gert er ráð fyrir að almennir fjárfestar fái að minnsta kosti 20% útboðinna hluta en lokaútfærsla útboðsins liggur ekki ljós fyrir. Reuters greindi áður frá því að SpaceX væri að íhuga að úthluta almennum fjárfestum allt að 30% hlut. Slík hlutdeild almennra fjárfesta var þá sögð óvenju mikil og gæti verið útspil til að nýta vinsældir Musks meðal ákveðins hóps almennra fjárfesta. Gert er ráð fyrir að hlutbréf SpaceX verði tekin til viðskipta á morgun. Eldflaugaframleiðandinn stefnir að því að sækja 75 milljarða dala í útboðinu, þar sem fyrirtækið er metið á tæplega 1.800 milljarða dala. Heildareftirspurn frá fjárfestum nemur meira en 250 milljörðum dala í því sem gæti orðið stærsta frumútboð sögunnar, samkvæmt Reuters. Sjá einnig Damodaran telur virði SpaceX ofmetið