Hlutabréf SpaceX hækkuðu um rúm 10% í viðskiptum fyrir opnun markaða í dag og stefnir nú í það að fyrirtækið verði verðmætara en Amazon þegar markaðir opna og þar með verða fimmta verðmætasta fyrirtæki heims. Þetta kemur fram í frétt frá Reuters. Gengið stóð um tíma í 212,50 dölum á hlut, meira en 57% yfir útboðsgengi félagsins síðastliðinn föstudag. Ef hækkunin heldur, jafnvel að að hluta til, gæti markaðsvirði SpaceX náð 2,8 þúsund milljörðum dala, samanborið við 2,66 þúsund milljarða dala markaðsvirði Amazon. Greinendur vara við að verðmatið sé mjög hátt miðað við innra virði félagsins. SpaceX velti 18,7 milljörðum dala á síðasta ári en tapaði tæpum 5 milljörðum dala eftir sameiningu við xAI. Til samanburðar velti Amazon 717 milljörðum dala árið 2025 og hagnaðist um tæpa 77 milljarða dala. Bent er á að hlutabréfaverð SpaceX endurspegli fyrst og fremst væntingar fjárfesta um áframhaldandi hækkanir fremur en undirliggjandi afkomu. Sérfræðingar búast við miklum sveiflum í hlutabréfaverði SpaceX, meðal annars vegna takmarkaðs framboðs hlutabréfa og hás verðs. Eftirspurn gæti þó aukist enn frekar þar sem SpaceX verður tekið inn í kauphallarsjóði og verður brátt tekið inn í Nasdaq 100 vísitöluna og síðar í vísitölur FTSE Russell og MSCI. Félagið greindi jafnframt frá því að útboðsstjórar hefðu nýtt heimild til að kaupa viðbótarhluti, sem hækkar heildarandvirði hlutafjárútboðsins í 85,7 milljarða dala.