Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Damodaran telur virði SpaceX ofmetið

Read Full Article →

Geimfyrirtækið SpaceX horfir til ‏þess að vera metið á 1.770 milljarða dala í almennu útboði sem lýkur í vikunni. Markaðsvirði gæti hækkað enn frekar þegar viðskipti með bréfin hefjast, sem gert er ráð fyrir að verði á fimmtudaginn, en talsverð umframeftirspurn er í hinu 75 milljarða dala frumútboði, samkvæmt heimildum Bloomberg . Fjárfestar þurfa þó að meta hvort félagið sé raunverulega svo mikils virði. Aswath Damodaran, prófessor í fjármálum fyrirtækja og verðmatsfræðum við viðskiptadeild New York-háskóla, telur að virði félagsins sé nokkuð ofmetið. Hann metur eigið fé SpaceX á um 1.300 milljónir dala. Í hlaðvarpi Wall Street Journal sagði Damodaran að munurinn skýrist einkum af því hvernig hann metur gervigreindarstarfsemi SpaceX. Í útboðsgögnum SpaceX áætlar félagið að svokallaður heildarmarkaður (e. total addressable market) gervigreindareiningarinnar xAI nemi um 2.600 milljónum dala, sem er stór hluti af 2.850 milljóna dala áætluðu heildarmarkaði alls félagsins. Damodaran segir þetta mat ekki vera sérstaklega trúverðugt. Umrædda gervigreindareiningu SpaceX má rekja til kaupa félagsins í ár á xAI sem hefur þróar Grok-spjallmennið. Þrátt fyrir lægra verðmat útilokar Damodaran ekki að bréfin hækki. Hann segir að viðskipti með þau verði líklega mjög mikil og ráðist að stórum hluta af meðbyr og tíðaranda.

Share this article