Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Spá ævintýra­legum tekju­vexti hjá SpaceX

Read Full Article →

Verðmat geimfyrirtækisins SpaceX upp á 1,78 þúsund milljarða dala í fyrirhuguðu frumútboði þess í næstu viku byggir að stórum hluta á því að tekjur gervigreindareiningar fyrirtækisins 100-faldist á fimm árum, samkvæmt sviðsmyndum fjárfestingarbankans Goldman Sachs. Goldman gerir ráð fyrir að tekjur gervigreindareiningar SpaceX aukist úr 322 milljörðum dala árið 2025 í 3,2 milljarða dala, samkvæmt sviðsmyndum sem bankinn kynnti fyrir fjárfestum. Þá er gert ráð fyrir að heildartekjur SpaceX verði 474 milljarðar dala árið 2030, samanborið við 18,7 milljarða dala í fyrra. Sama greining gerir ráð fyrir að tekjur SpaceX gæti náð 3,4 þúsund milljörðum dala árið 2040, að því er kemur fram í frétt WSJ. Þá telur bankinn að EBITDA-hagnaður fyrirtækisins gæti farið yfir 1,7 þúsund milljarða dala árið 2040. SpaceX stefnir á að sækja ríflega 75 milljarða dala í frumútboði í næstu viku, sem yrði þá stærsta frumútboð sögunnar. SpaceX tapaði 4,9 milljörðum dala á árinu 2025. Ein stærsta tekjulind SpaceX er Starlink en það er net gervihnatta, sem veitir háðraðanettengingu víða um heim. SpaceX hefur einnig verulegar tekjur af samningum við bandarísk stjórnvöld sem tengjast geimferðum.

Share this article