Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Skortstöður í SpaceX aukast

Read Full Article →

Skortstöður með hlutabréf SpaceX hafa stækkað nokkuð í kjölfar 14% lækkun á gengi félagsins í vikunni samkvæmt gagnaveitunni Ortex Technologies. Skortstöður nema nú 13% af útistandandi hlutabréfum á markaði, samanborið við 8% í byrjun vikunnar. „Skortstöður í SpaceX hafa byggst upp óvenju hratt fyrir félag sem hefur verið skráð í þetta stuttan tíma,“ sagði Peter Hillerberg, meðstofnandi Ortex, í samtali við Reuters . Gengi hlutabréfa SpaceX hefur lækkað um 30% frá hámarkinu sem það náði í 225,6 dölum. Hillerberg sagði hækkun skortstöðunnar skýrt merki um að fleiri fjárfestar búist við verulegri lækkun á hlutabréfaverði SpaceX. Ríflega 2 þúsund milljarða dala verðmat SpaceX gerir félagið að augljósu skotmarki skortsala. Mikill áhugi almennra fjárfesta og tilhneiging Musks til að fara í hart við skortsala gerir það hins vegar að áhættusamri stöðutöku. Lántökukostnaður bréfanna er þó ekki mikill, eða um 1%, eftir að hafa farið í 14% við skráningu. Þessi kostnaður er ákveðinn mælikvarði á eftirspurn eftir því að skortselja bréfin. Hillerberg varaði við því að takmarkað framboð bréfa gæti gert skortsala berskjaldaða fyrir skortsöluþrýstingi (e. short squeeze) ef gengið hækkar snögglega og þeir neyðast til að kaupa bréfin til baka á hærra gengi.

Share this article