Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Yfir 600 milljóna högg vegna Annata og Ocu­lis

Read Full Article →

Skagi, móðurfélag VÍS, Fossa fjárfestingarbanka og Íslenskra verðbréfa, hagnaðist um 731 milljón króna á öðrum ársfjórðungi, samanborið við 972 milljóna króna hagnað á sama tímabili í fyrra. Arðsemi eigin fjár nam 12,9% á ársgrundvelli, samanborið við 18,4% á sama tímabili í fyrra. Tekjur af af vátryggingarsamningum jukust um 7,3% og nám 8,4 milljörðum króna og afkoma vátryggingarsamninga nam 1.446 milljónum króna. Til samanburðar nam afkoman 1.499 milljónum á sama tíma í fyrra. Eins og kom fram í afkomuviðvörun Skaga í síðustu viku var áfram góður taktur í tryggingastarfsemi félagsins. Haraldur I. Þórðarson, forstjóri Skaga bendir í afkomutilkynningu félagsins að samsett hlut VÍS á fyrri árshelmingi hafi verið það lægsta síðan árið 2007. Sjá einnig Tryggingarnar yfir spám en fjár­mála­starf­semin undir væntingum Neikvæð afkoma af fjármálastarfseminni vó hins vegar á móti. Hann segir samdráttinn skýrast einkum af lægri þóknanatekjum hjá Fossum í markaðsviðskiptum og fyrirtækjaráðgjöf ásamt neikvæðum fjármunatekjum. Hreinar tekjur af fjármálastarfsemi námu 666 milljónum króna sem er 9% samdráttur á milli ára. Afkoma af fjármálastarfsemi var neikvæð um 95 milljónir króna. Fjárfestingartekjur Skaga námu 396 milljónum króna á öðrum ársfjórðungi sem samsvarar 0,8% ávöxtun. Hreinar tekjur af fjárfestingum voru neikvæðar um 144 milljónir króna. Í uppgjörstilkynningu Skaga kemur fram að óskráð hlutabréf drógu niður afkomu ársfjórðungsins en eignaflokkurinn lækkaði um 220 milljónir króna eða 3,1%. Mestu munaði um að virði eignarhlutar í hugbúnaðarfyrirtækinu Annata lækkaði að fjárhæð 286 milljónir króna, en eignarhlutur félagsins er í gegnum sjóði á vegum VEX og lækkaði rekstrarfélagið virðismat á félaginu á ársfjórðungnum. Í lok árs 2025 var eignarhlutur VÍS í Annata metinn á 614 milljónir króna og var þá þriðja stærsta óskráða eign tryggingafélagsins, aðeins á eftir eignarhlutum í Coripharma og Bláa lóninu. Sjá einnig Samdráttur og forstjóraskipti hjá Annata Eins og Viðskiptablaðið greindi frá tapaði Annata tapaði 81 milljón króna árið 2025, eftir að hafa hagnast um tæplega 600 milljónir króna árið áður. Tekjur samstæðunnar drógust saman um 5% milli ára og námu 5,7 milljörðum króna. Annata þróar og selur viðskiptalausnir byggðar á skýjalausn Microsoft, Azure og tengdum kerfum, fyrir bifreiða- og vinnuvélaiðnaðinn. Skráð hlutabréf skiluðu neikvæðri afkomu hjá Skaga að fjárhæð 89 milljónir króna eða -1,2% ávöxtun. Þar hafði lækkun á virði Oculis mest áhrif á afkomu skráðra hlutabréfa eða samtals 356 milljónir króna á öðrum ársfjórðungi. Hlutabréfaverð Oculis lækkaði um 48% á öðrum ársfjórðungi sem má rekja til þess að gengi félagsins lækkaði um meira en helming eftir að hafa greint frá því í lok maí að tvær lykilrannsóknir á augndropum OCS-01 við sjónhimnubjúg af völdum sykursýki hefðu ekki náð markmiði sínu.

Share this article