Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Tryggingarnar yfir spám en fjár­mála­starf­semin undir væntingum

Read Full Article →

Skagi, móðurfélag VÍS, Fossa fjárfestingarbanka og Íslenskra verðbréfa, hefur sent frá sér afkomuviðvörun vegna rekstrarniðurstöðu fyrri árshelmings. „Útlit er fyrir að afkoma samstæðunnar á tímabilinu nemi u.þ.b. 700 milljónir króna fyrir skatt saman borið við neikvæða afkomu upp á 104,3 milljónir króna á sama tímabili síðasta árs.“ Drög að uppgjöri tímabilsins benda til þess að samsett hlutfall í tryggingastarfsemi hafi verið betra en áætlanir gerðu ráð fyrir. Að sama skapi telur félagið að tekjur í fjármálastarfsemi hafi verið talsvert lakari en gert var ráð fyrir. Samsett hlutfall betra en gert var ráð fyrir Uppgjörsdrögin benda til þess að samsett hlutfall í tryggingastarfsemi VÍS á fyrstu sex mánuðum ársins hafi verið 90,4%. Í áður birtum rekstrahorfum fyrir árið 2026 í heild var áætlað að samsett hlutfall yrði á bilinu 92-95% með markmið um að vera undir 93,5%. Skagi hefur ákveðið að uppfæra rekstrarhorfur í tryggingastarfsemi þannig að áætlað er að samsett hlutfall ársins verði á bilinu 90-93% með markmið um að vera undir 91,5%. Rekstrarbatinn er rakinn til áframhaldandi tekjuvextar í tryggingastarfsemi, hagfelldri tjónaþróun og hagræðingu í rekstri. Jafnframt segir að jákvæðar matsbreytingar hafi orðið vegna hagstæðrar þróunar fyrri tímabila. Samkvæmt drögum að uppgjöri er ávöxtun fjárfestingareigna 1,5% á fyrri árshelmingi. Spá um tekjur í fjármálastarfsemi færð niður um 600 milljónir Með vísan til draga að uppgjöri telur Skagi rétt að horfur séu á því að tekjur í fjármálastarfsemi muni nema á bilinu 2,7-3,2 milljörðum króna á árinu í heild og nýtt markmið sett um að tekjur verði yfir 2,9 milljarðar króna. Í áður birtum rekstrarhorfum var áætlað að tekjur í fjármálastarfsemi myndu nema á bilinu 3,3-3,8 milljörðum króna á árinu 2026. Breytingin er rakin til neikvæðra fjármunatekna vegna dræmrar ávöxtunar á innlendum hlutabréfamarkaði og lægri tekna fyrirtækjaráðgjafar og markaðsviðskipta en áætlanir gerður ráð fyrir sökum minni veltu á markaði. Uppfærð áætlun fyrir seinni helming ársins hjá Íslenskum verðbréfum gerir jafnframt ráð fyrir lægri tekjum en fyrri áætlun sökum lægri umsýsluþóknana á tímabilinu. Fram kemur að tekjur ÍV hafi aukist um 24% á fyrri árshelmingi samanborið við fyrra ár. Áréttað er að vinna við árshlutauppgjörið sé enn í gangi og því geti lykiltölur tekið smávægilegum breytingum fram að birtingu. Uppgjörið verður birt þann 15. júlí næstkomandi.

Share this article